23.02.1920
Neðri deild: 10. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 294 í B-deild Alþingistíðinda. (448)

19. mál, löggilding verslunarstaða

Hákon Kristófersson:

Jeg á brtt. á þgsk. 69., og liggja til þess sjerstakar ástæður, að hún hefir ekki komið fyr fram. Jeg held, að hennar vegna sje óþarfi að setja málið í nefnd, en ef hv. deild lítur svo á, þú mun jeg heldur taka till. aftur en tefja málið.

Till. er flutt eftir ósk eiganda þeirrar jarðar, sem till. getur um, og hafa samskonar beiðnir ávalt verið veittar áður, og eins vona jeg að nú verði gert.