10.02.1920
Sameinað þing: 1. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í B-deild Alþingistíðinda. (46)

Rannsókn kjörbréfa

Jón Auðunn Jónsson:

Jeg hafði ekki ætlað mjer að taka til máls, því þessar kosningar snerta mig. En ummæli háttv. þm. N.-Þ. (B. Sv.) um flokksafstöðu á Ísafirði koma mjer til að segja fáein orð til skýringar. Alþingiskosningar og bæjarstjórnarkosningar hafa oftast haft mismunandi úrslit þar vestra. Það hefir oft farið svo, að sá flokkur, sem kom að þingmanni, hefir síðan sigrað við bæjarstjórnarkosningar, en líka eins oft það gagnstæða. Bæjarstjórnarkosningarnar síðustu sýna því engan veginn, að kjörfylgi mitt hafi rjenað, og verða því enginn óskeikull mælikvarði á afstöðu og kjósendaafl flokkanna.

Um kæruatriðið skal jeg geta þess, að þegar jeg heyrði þennan mútuorðsveim, þá fór jeg með Jóhanni kaupmanni Þorsteinssyni á fund mannsins, sem fyrir sök er hafður, og vildi fá að vita, hver fótur væri fyrir mútutali manna. Maðurinn neitaði því, að nokkuð væri í því hæft, og eins gerði hann síðar, er jeg átti tal við hann rjett áður en jeg fór af Ísafirði. Frekara get jeg ekki um málið sagt. Mig skiftir engu, hvort rannsókn fer fram eða ekki; jeg læt það með öllu afskiftalaust. Jeg hefi leitt þetta mál hjá mjer, og geta hv. þm. vottað það, að jeg hefi ekki ónáðað þá með liðsbón eða öðru slíku.