25.02.1920
Neðri deild: 12. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í B-deild Alþingistíðinda. (492)
29. mál, bann innflutnings á óþörfum varningi
Gunnar Sigurðsson:
Þótt jeg sje „principielt“ á móti þessu frv., eins og öllu því, sem grípur mjög fram fyrir hendur einstaklinganna í framleiðslu og verslun, þá verð jeg samt, eins og nú standa sakir, að greiða þessu frv. atkv. Jeg álít, að eyðslan sje orðin það mikil á óþörfum varningi, að nauðsynlegt sje, eins og nú standa sakir, að hefta hana. Jeg veit, hvernig er hjer í Reykjavík, og jeg býst við, að líkt sje ástatt annarsstaðar. Það eru ekki þarfavörur, sem mest ber á í búðargluggunum; þeir eru fullir af glingri og glysvarningi. Eftir að viðskiftin hófust aftur við Þýskaland, hefir glingrið orðið meira og meira; hvert einasta skip, sem komið hefir síðan, hefir velt syndaflóði óþarfans inn á markaðinn, en nauðsynjavörur hafa setið á hakanum. Þetta er beint tjón fyrir almenning, en þó vil jeg leggja meiri áherslu á óbeina skaðann, á afstöðu bankanna. Þeir lána heldur til þessa, og er það skiljanlegt, því þeir fá peningana fljótar aftur heldur en ef þeir lána þá í framleiðslu- og framfarafyrirtæki. Viðkvæðið er altaf það sama, þegar farið er fram á lán til þesskonar fyrirtækja, að peningarnir komi svo seint aftur. Það er þetta, sem jeg vildi leggja aðaláhersluna á, og þess vegna greiða atkv. með frv.