10.02.1920
Sameinað þing: 1. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 49 í B-deild Alþingistíðinda. (50)
Rannsókn kjörbréfa
Jón Auðunn Jónsson:
Hv. þm. N-Þ. (B. Sv.) var að tala um bæjarstjórnarkosningamar á Ísafirði eftir nýárið. Til þess að leiða hann í allan sannleika, skal jeg leyfa mjer að skýra frá því, að þar var barist um nokkur atriði í lögreglusamþykt Ísafjarðarkaupstaðar, sem taka átti upp úr lögreglusamþykt Reykjavíkur. Annars var sú kosning svo mjög illa sótt, að samanlögð tala atkvæða var miklu lægri en það, sem við fengum hvor um sig, þingsætiskeppinautarnir, en reyndar má geta þess, að margir sjómenn voru þá fjarverandi. Um að það hafi verið sett á oddinn, að sonur kæranda byði sig fram, þá er þar til að svara, að öllum er kunnugt þar vestra, að það er annað sonurinn og annað faðirinn. Um breytileik kjörfylgis á Ísafirði má benda á atkvgr. um sambandsmálið.
Jeg vil taka það fram, að ef háttv. þm. halda, að jeg hafi borið fje á kjósendur mína mjer til kjörfylgis, boðið það fram til slíkra hluta, eða á annan hátt stuðlað að því, að slíkt væri gert af öðrum, skal jeg ekki leggja neinn kala til nokkurs manns, sem greiðir till. þeirri, sem fram er komin, atkv. sitt.