24.02.1920
Neðri deild: 11. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 317 í B-deild Alþingistíðinda. (514)
30. mál, mótorvélfræði
Frsm. (Magnús Kristjánsson:
Sjávarútvegsnefnd hefir athugað frv. og fallist á það í öllum atriðum, en þó með smávægilegum breytingum, sem eru á þgskj. 64. Þar sem þessar brtt. eru ekki efnisbreytingar, þá sje jeg sem flm. ekkert við þær að athuga. Þar sem málinu var svo vel tekið, bæði í deildinni og í nefndinni, sem um það fjallaði, þá sje jeg ekki ástæðu til að telja því fleira til gildis en jeg gerði við 1. umr. En ef verulegs andblásturs verður vart nú hjer í deildinni, þá skal jeg reyna að rökstyðja það frekar. En jeg vona, að ekki komi til þess. Jeg ætla því ekki að fara frekari orðum um þetta, en vænti, að fylgi þess sje ekki minna en það var við 1. umr.