27.02.1920
Efri deild: 14. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 326 í B-deild Alþingistíðinda. (561)
37. mál, manntal á Íslandi
Sigurður Eggerz:
Jeg skal geta þess, að frv. þetta er flutt af allsherjarnefnd Nd. eftir tilmælum fjárhagsstjórnarinnar, að hvötum hagstofustjórans. Það þótti viðkunnanlegra, að manntalið væri bygt á lagaboði. Auk þess hafði bólað á því við síðasta manntal, að teljarar voru óánægðir með það að fá ekki kaup. Hjer er teljurum ekki ætlað kaup, en sveitarstjórnum þó heimilt að greiða þeim, ef þeim þykir ástæða til þess. Hjer er enn fremur gert ráð fyrir nefnd til aðstoðar við hagstofuna um spurningar, sem sendar verða út um land fyrir manntalið. Frv. fylgdi greinileg rökstuðning frá hagstofunni, og vænti jeg því, að hv. deild taki frv. vel.