27.02.1920
Efri deild: 14. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 327 í B-deild Alþingistíðinda. (562)
37. mál, manntal á Íslandi
Sigurður Hjörleifsson Kvaran:
Mjer þætti fróðlegt að heyra álit manna um það, hvernig eigi að haga manntalinu þar, sem fríkirkjusöfnuðir eiga í hlut. Nú er manntalið falið prestum, en jeg skil ekki, að það geti gilt gagnvart öðrum en þeirra eigin söfnuðum, en ekki fríkirkjusöfnuðum. Það er rjett að minnast á þetta til leiðbeiningar.