23.02.1920
Efri deild: 8. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 349 í B-deild Alþingistíðinda. (644)
34. mál, notkun bifreiða
Flm. (Guðjón Guðlaugsson):
Þetta stutta frv. er þekt frá síðasta þingi. Það mætti engum mótmælum hjer, en fjell af tilviljun í hv. Nd.
Mergurinn málsins er sá, að ef t. d. maður í sveit á son, 18 eða 19 ára, sem hann getur látið stýra bifreið fyrir sig, þá sje honum leyft það, þó að sonur hans hafi ekki náð lögskipuðum aldri til þess að stýra almennri fólksflutningabifreið.
Bifreiðarnar eru nú að útbreiðast meira og meira, en hestarnir víða að leggjast niður. Sumstaðar eru líka t.d. horfur á, að bílar verði notaðir við heimavinnu á bæjum, heyflutninga, áburðarakstur, auk aðdrátta. Væri þá í meira lagi ósanngjarnt að ætla hverjum bónda að halda sjerstakan mann með bílinn, en leyfa honum ekki að nota til þessa starfs, eins og annara, þann vinnukraft og mannafla, sem hann hefir fyrir.
Jeg vona, að málið sje svo einfalt, að því verði hleypt nefndarlaust til annarar umr., ef hv. deild vill á annað borð líta við því, sem jeg vona einnig.