26.02.1920
Neðri deild: 14. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 377 í B-deild Alþingistíðinda. (688)

49. mál, dýrtíðaruppbót og fleira

Sigurður Stefánsson:

Jeg og hv. þm. Ísaf. (J. A. J.) eigum viðaukatillöguna á þgskj. 120.

Það gladdi mig að heyra, hvernig hv. þm. Ak. (M. K.) tók í það mál.

Jeg og hv. þm. Ísaf. (J. A. J.) fórum þess á leit við samgöngumálanefnd nú á öndverðu þinginu, að hún greiddi úr þessu, en engar tillögur eru komnar frá henni enn þá um málið, og jeg býst ekki við, að þær mun koma.

Við rjeðumst því í að bera fram fyrir deildina þessa rökstuddu till. okkar, og vonum við, að hv. samgöngumálanefnd þykkist ekki við það.

Það hefir verið allerfitt að halda uppi ferðum þessum, og upp á síðkastið hefir bátakostur til þessara ferða verið bæði of lítill og ófullnægjandi.

Nú hagar svo til, eins og flestum mun kunnugt, að í Ísafjarðarsýslu eru nær engir færir landvegir, heldur er alt flutt á sjó. En meðan smábátaútgerðin var í sem mestum blóma, kom þetta ekki svo mjög að klandri, því þá mátti heita, að hver stærri bóndi ætti sinn eigin bát.

En nú hefir útvegurinn breyst á síðustu árum þannig, að stórir mótorbátar hafa komið í stað hinna smærri, en hinir smærri bátarnir verið seldir burt úr sýslunni. En flutningaþöfin hefir ætíð farið sívaxandi.

Til þess svo að bæta úr vandkvæðum þessum var í fyrra stofnað hlutafjelag, sem rjeðst í að kaupa bát. Hefðu ferðirnar orðið að leggjast niður, ef þetta ráð hefði ekki verið tekið. Bátur þessi kostar um 100 þúsund kr. Þar af keypti Ísafjarðarkaupstaður hluti fyrir 4000 kr., sýslan fyrir 6 þús. og ýmsir hreppar nokkuð.

Miðað við útgerðarkostnað í haust hefði má ske getað komið til mála, að báturinn bæri sig með þessum litla styrk, sem nú er til bátaferða veittur, en nú hefir alt, er til útgerðar heyrir, hækkað um ca. 60% síðan í haust, svo auðsætt er, að báturinn ber sig ekki með þann lága styrk, er hann hefir nú, og að ekki verður hægt að halda bátnum úti nema styrkurinn sje aukinn.

Það kemur ekki Ísafjarðarsýslu einni að notum, að haldið er uppi föstum ferðum þarna á milli, heldur einnig Barðastrandarsýslu og Dalasýslu.

En svo er eitt mikilsvert atriði í þessu máli, sem sje það, að það er gert að skilyrði fyrir að báturinn fái styrkinn, að hann haldi uppi 15 póstferðum á ári milli Arngerðareyrar og Ísafjarðar. Hver þessara póstferða kostar 5–600 kr., ef kaupa ætti í hvert skifti bát með póstinn. En með þessari skuldbindingu er erfitt að semja eins handhæga ferðaáætlun fyrir bátinn sem annars hefði verið. Jeg hugsa, að eigendur bátsins vildu heldur reka bátinn upp á eigin spýtur en njóta þessa litla styrks og hafa þá aftur þessa skyldu að inna af hendi.

Það er enginn vafi á því, að ríkissjóður sparar sjer fje við þetta, því annars yrðu póstferðirnar tilfinnanlegri.

Hv. meðflutningsmaður minn (J. A. J.) hefir nú í morgun fengið skeyti um þetta mál frá fjelaginu, og vænti jeg, að hann skýri hv. deild frá, hvernig á horfist.

Ísafjarðarsýsla hefir nú ekki verið svo heimtufrek við ríkissjóð, og er þessi styrkur því ekki mikilvægur, þegar það er athugað, að þessar bátsferðir eru lífsskilyrði. Sjóleið þessi er stundum mjög erfið, t. d. á vetrum, og þá oft ófær öðrum en stórum bátum. Er þess vegna nauðsyn á stórum og góðum bát, en á honum er völ, ef þessi styrkur verður veittur. Þetta hlutafjelag mundi ekkert hafa á móti því að fara ferð haust og vor til vesturhluta Húnaflóa, t. d. á Strandir. Þessi bátur mundi einnig oft geta sparað strandferðabátunum mikið ómak. T. d. lágu 400 tn. af kjöti á Arngerðareyri í fyrra haust, og varð Sterling að sækja þær þangað. Þetta ómak hefði bátur nú t. d. getað sparað, og svo er um fleira.

Við hjeldum, að hægt væri að komast af með 9 þús. kr., en samkvæmt skeyti til hv. þm. Ísaf. (J. A. J.) er þörfin svo mikil, að ekki er hægt að notast við þá upphæð. Hækkunin liggur mest í því, hvað alt hefir hækkað gífurlega. Það er engin von um, að útgerðin geti borgað sig, enda þótt ríkissjóðsgjaldið væri 20 þús. kr. bæði árin. Við höfum þess vegna farið fram á 11 þús. kr. fjárveitingu hvort árið um sig, og jeg vona, að sú aðaltill. okkar verði samþykt., því að það er hagur ríkissjóði, að þetta fyrirtæki gangi sæmilega. Jeg vænti þess, að háttv. deildarmenn líti á það, og eins á þá aðkallandi nauðsyn, sem er á þessari fjárveitingu.