10.02.1920
Sameinað þing: 1. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í B-deild Alþingistíðinda. (7)
Rannsókn kjörbréfa
Frsm. 1. kjörbrjefadeildar (Eiríkur Einarsson):
Það er hlutverk mitt að hafa framsögu af hendi 1. kjörbrjefadeildar.
Hvað þau kjörbrjef snertir, er þessari kjörbrjefadeild hafa verið fengin í hendur til athugunar, vill hún leggja til, að þau öll, að undanskildu einu, kjörbrjefi háttv. 2. þm. Reykv. (Jak. M.), verði tekin gild. Þó vil jeg geta þess, að hvað snertir kosningu hv. 2. þm. Húnv. (Þór. J.), þá er kjörbrjef hans enn ókomið, en aftur á móti liggur fyrir þinginu útskrift úr gerðabók yfirkjörstjórnar Húnvetninga, er sýnir, að kosningin er lögleg. Er því lagt til, að kosningin sje tekin gild, í vændum þess, að kjörbrjefið komi.
En um kosningu á 2. þm. Reykv. (Jak. M.) er aftur á móti öðru máli að gegna. Yfir þessari kosningu hefir verið kært, og liggur sú kæra fyrir, undirskrifuð af 5 kjósendum kjördæmisins. Höfuðatriði kæru þeirrar eru þau, að 14 menn, er stóðu á aukakjörskrá, hafi kosið, án þess að hafa náð þeim lögmæta aldri, sem 11. gr. kosningalaganna mælir fyrir um að tilgreindur skuli vera á aukaskránni, og er upplýst, að þessir 14 menn hafi kosið án þess að vera búnir að ná aldurstakmarkinu, er skráin bar með sjer. Enn fremur er þess getið um 15. manninn, er ólöglega hafi kosið, að hann hafi ekki átt nógu lengi heima í kjördæminu og af þeim sökum eigi haft leyfi til þess að kjósa. Í kæruskjalinu er þess getið sem þungamiðju, að atkvæðamunur hafi verið svo lítill, að hin ólöglegu atkvæði hafi vel getað valdið úrslitunum, þar sem um 15 menn sje að ræða. en atkvæðamunur 5.
Af þessum áðurgreindu ástæðum, að kosningakæra liggur hjer fyrir, sem virðist vera á rökum bygð, þykir kjörbrjefadeildinni það sjálfsagt að fara varlega og hyggilega og hrapa ekki að neinu með úrskurð, með flýti eða flokkshita, og leggur það til, að úrskurðinum sje frestað um sinn og málið fengið væntanlegri kjörbrjefanefnd til athugunar.
Þá er og annað atriði, sem kom deildinni til þess að fara fram á frestun, og er það, að hjer er um tvímenningskjördæmi að ræða, og þá til athugunar, hvort eigi beri að ónýta kosningu beggja, án þess að kjörbrjefadeildin geri nokkrar tillögur um, hvort það sje gert.
Það er þá, í fám orðum sagt, álit kjörbrjefadeildarinnar að leggja þessa frestunartillögu fyrir sameinað þing, með þeim viðauka, til athugunar fyrir væntanlega kjörbrjefanefnd, hvort eigi muni ástæða til, að kjördeildirnar við Reykjavíkurkosninguna, þar sem lögfræðingur átti sæti í hverri deild, fái nokkur víti fyrir verk sín.