26.02.1920
Neðri deild: 15. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 426 í B-deild Alþingistíðinda. (743)

50. mál, landhelgisgæsla

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg þarf ekki miklu við að bæta það, sem hv. frsm. (P. O.) sagði við fyrri umr. þessa máls.

Það er rjett, að flotamálaráðuneytið danska mun hafa hjer við land tvö varðskip að meira eða minna leyti í ár, og ber að viðurkenna þetta með þakklæti, því að ekki ber þeim eftir sambandssamningnum skylda til meiri strandvörslu nú en fyrir ófriðinn.

Það er að vísu svo, að strandgæsla hefir hjer verið nokkuð í molum, meðan stríðið stóð, en þess ber að gæta, að um langt skeið var Íslands Falk einasta fólksflutningaskipið milli Íslands og útlanda, og fór þá margar ferðir fram og aftur beint í okkar þágu. En meðan stríðið stóð vildi svo til, að mikillar varðgæslu þurfti ekki, í samanburði við þörfina annars.

Jeg vil taka það fram, að vel getur farið svo, að varðgæslan verði minni en ella vegna kolaleysis. Að vísu átti flotamálaráðuneytið hjer talsverðar birgðir af kolum, sem ætluð voru varðskipunum. En vegna kolavandræðanna hjer nú hefir íslenska stjórnin beðið um og fengið talsvert af þessum birgðum til eyðslu í landi. Ef örðugleikar verða að fá kolin frá Bretlandi aftur, og þá á því að endurborga þetta lán, þá dregur það úr landvörninni.

Annars mun landsstjórnin athuga mál þetta alt og gera sitt til bóta á strandvörnum.