27.02.1920
Neðri deild: 17. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 438 í B-deild Alþingistíðinda. (768)
60. mál, vöruvöndun
Jakob Möller:
Háttv. þm. Ak. (M. K.) drap á það, að sú síld, sem fyrst hefði verið flutt út í ár, hefði selst best.
Þó að þetta hafi verið tilfellið í ár, þá gildir það ekki altaf, enda mun það, að síldin kom seint á markaðinn, ekki hafa valdið því, að hún seldist ekki, heldur hitt, að útgerðarmenn vildu ekki selja hana fyrir það verð, sem bauðst, en algengt, að síld sje seld áður en hún er flutt út, ef að eins viðunanlegt boð fæst. Það má vel vera, að sú síld hafi selst best, sem flutt var út strax í vertíðarbyrjun í sumar. En þá er þess að gæta, hvort hún hafi ekki, einmitt af því að hún var óendurmetin, spilt fyrir sölu þeirrar síldar, sem eftir var.