26.02.1920
Efri deild: 13. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 451 í B-deild Alþingistíðinda. (790)
39. mál, kaup björgunarbáts
Frsm. (Karl Einarsson):
Mál þetta hefir verið athugað af sjávarútvegsnefndum beggja deilda, þótt álitið komi að eins frá sjávarútvegsnefnd þessarar hv. deildar. En jeg skal taka það fram, að hin nefndin mælir einhuga með því og greiddi öll atkvæði með því. Það, sem gerði, var það, að hún sá, þegar hún fór að athuga málið, að hjer var um betra skip að ræða en það, sem kostur var á 1918.
Jeg get upplýst það fyrir hv. deild, að Vestmannaeyingar vilja fórna sjer fyrir þetta fyrirtæki, og bæjarstjórnin vill veita styrk til að gera skipið út þessa vertíð. Er það góð reynsla fyrst í stað. Það má segja, að bæjarstjórnin leggi mikið í sölurnar, er hún borgar rekstur skipsins til vertíðarloka.
Jeg hefi nú ekki farið fram á meira en 50 þúsund króna styrk í viðbót við þær 40 þúsund krónur, er fjelaginu þegar hafa verið veittar, og myndi það nema þriðjungi skipsverðsins, ef það næði fram að ganga.
Jeg hygg ekki þörf á að segja meira um mál þetta, en óska því góðs gengis.