17.02.1920
Efri deild: 5. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 454 í B-deild Alþingistíðinda. (806)

24. mál, varnir gegn spönsku innflúensusýkinni

Flm. (Gísli Sveinsson):

Jeg vil til þess að byrja með gera nokkrar athugasemdir um málið yfirleitt.

Jeg þarf ekki að lýsa tilefninu til till. Hún fer fram á það að Alþingi láti ekki sitt eftir liggja til þess, að alt verði gert til þess að varna því, að sýki þessi, spanska inflúensusýkin, berist til landsins. Er það öldungis víst, að allur landslýður mun láta sig þetta miklu skifta og vænta þess, að landsstjórnin haldi uppi öruggum vörnum af öllum mætti.

Háttv. þm. má vera kunnugt, hvernig litið var á í fyrra af öllum landslýð, hvað gera bæri. Jeg var og er á þeirri skoðun, að ef í upphafi hefðu verið gerðar ítrustu tilraunir til þess að stemma stigu fyrir sýkinni, mundu þær hafa tekist. Var ýmsum kent, að þetta var ekki gert. En þeir, sem rjeðu í fyrra, voru á annari skoðun. Og var þá tekið til þeirra ráða, að halda uppi vörnum innanlands, þó ærið takmörkuðum til að byrja með.

Nú má búast við því, að sýkin komi hingað, því að hún geisar í nágrannalöndunum, og má þá gera ráð fyrir því, að vörnum verði haldið uppi með líkum hætti og þegar á sjer stað. Jeg er sannfærður um það, að öll þjóðin mun styðja allar ráðstafanir stjórnarinnar til þessa.

En nú hefir það gerst í landinu, sem ekki má kyrt liggja. Þótt stjórnin — sem sjálfsagt var og rjett — hafi gefið út fyrirskipun um sóttvarnir gegn útlendum skipum, þá er það frá fleiri hliðum fullyrt, að veikin sje komin upp á einum stað, og enginn veit hvort hún er komin hingað.

En til Vestmannaeyja er hún komin, en væntanlega getur stjórnin gefið skýrslur, og er jeg engan veginn að kenna henni þetta, en eftir reglum stjórnarinnar hefir eftir þessu ekki verið farið; en ekki að eins landsstjórninni, heldur og sóttvarnarnefnd og lögreglustjóra er skylt að sjá um það, að valinn maður sje í hverju sæti, sem framfylgi reglunum hlífðarlaust. Það er sagt, að til Vestmannaeyja hafi komið 1 eða 2 botnvörpungar, sem sýkin hafi hlotist af. Og það má ekki líðast annað en komist verði fyrir, hvernig þetta hafi orðið. Jeg skora alvarlega á stjórnina, vegna almennings, að láta rannsaka slindrulaus hvort reglurnar hafi verið fótum troðnar.

Það mætti ef til vill sýnast eðlilegt, að einhver hængur geti orðið á með löggæslu á þessum stað, þar sem enginn lögreglustjóri er nú settur, eða lögfræðingur, með fullu valdsumboði, á meðan lögreglustjóri Eyjaskeggja situr hjer á þingi. Jeg veit eigi, nema rjett væri, ef þing þetta stæði lengi yfir, að setja reglulegan lögreglustjóra í hans stað. Vestmannaeyjar eru þannig settar, að mikil hætta er á, að þangað berist sjúkdómar frá útlöndum. Skip koma þar daglega að landi og miklir erfiðleikar eru á að sjá svo fyrir, að engin mök sjeu höfð við þau úr landi. Jeg verð því að leggja áherslu á, að þessu sje alvarlegur gaumur gefinn.

Auk þess eru Vestmannaeyjar í þessu efni hættulegur staður fyrir landið alt, og þá einkum suðurströndina. Þegar alt er með feldu, eru samgöngur mjög örar við Eyjarnar, og þangað koma skip að austan norðan og vestan, og þar er fastur viðkomustaður strandferðaskipa og skipa þeirra, er fastar áætlanir hafa.

Jeg þarf ekki að taka fram, hversu bagalegt þetta er. Það sjá allir í hendi sjer. En það verður að hafa það. Hjer sitja menn, sem þurfa að komast þangað, og hjer liggja vörur, sem eiga að fara í Eyjarnar. En eigi dugir að fást um það. Það verður að útiloka þær eins lengi og nokkur hætta stafar af þeim, og þó lengur, en vörur, nauðsynlegar. má flytja til þeirra eftir vissum reglum. Og ekki dugir að setja fyrir sig, þótt fjelög og einstakir menn bíði tjón nokkurt við það, og ekki má horfa í að gera allar varnir, sem við verður komið, hvað sem það kostar.

Jeg hefi heyrt, að landsstjórnin hafi sett Eyjarnar í bann, og tel jeg það þakkarvert, og vænti jeg, að þess verði stranglega gætt.

Síðan við komum hjer á þing hafa gengið í gildi fyrirskipanir um varnir gegn kvefpestinni. Jeg veit ekki, hvaða rannsóknir hafa verið gerðar viðvíkjandi veikinni, en jeg vona, að í Reykjavík verði ekki látið undir höfuð leggjast að fylgja öllum þeim varnarráðstöfunum, er við verður komið. Vil jeg, að landsstjórnin geri sitt ítrasta til að brýna það fyrir mönnum og áminna um, að varnarráðstöfunum sje fylgt fast fram; má vera, að áskorun frá Alþingi geti og stutt að hinu sama.

Mjer er það ljóst, að þegar búið var að gera nefnda fyrirskipun, stafaði ekki svo mikil hætta af skipum þeim, er fóru fastar ferðir á ákveðna staði, heldur frá ýmsum útlendum fiskiskipum, botnvörpungum og öðrum. Og ef það reynist rjett, að inflúensan hefir borist til Vestmannaeyja með þýsku fiskiskipi. Þá er enn meiri ástæða til að óttast lausu skipin.

En er nú innilokunartíminn nógu langur? Um það get jeg, sem leikmaður, ekki dæmt. Jeg geng út frá, að hann hafi verið áætlaður það af læknum, — en leiki nokkur minsti vafi á um það, er ekki einungis sjálfsagt, að hann sje lengdur, heldur gerir það ekkert til, þó innilokunartíminn sje tveimur til þrem dögum lengri en þurfa þykir. Í fyrstu var veikinni ætlaður 5 daga meðgöngutími — og var það gert að ráði eða samkvæmt skoðun erlendra lækna —, en nú hefir tíminn verið lengdur úr 5 dögum upp í 7 daga. og gefur það til kynna, að eigi hafi þótt örugt um, að 5 dagar væru nógir. En mjer er þá spurn. eru 7 dagar það?

Jeg tel ekki vert að horfa í það, þótt tefja verði skipin 1–2 dögum lengur, og því vil jeg leggja áherslu á, að hæstv. landsstjórn áætli tímann heldur of langan en skamman jafnvel 10 dagar eru ekki of langur tími, sjeð frá almennu sjónarmiði, þótt það hafi aukinn kostnað í för með sjer. — Jeg hefi heyrt sagt, að til væru menn, er tala um aukinn kostnað í sambandi við þetta mál. Jeg veit, að allir muni sjá, að kostnaður fylgir vörnum öllum og viðbúnaði, og jeg veit einnig, að menn sjá, að kostnaður sá, er hjer um ræðir, er aukaatriði. Hann er svo hverfandi hjá þeim voða og tjóni, sem ekki verður með tölum talið, sem af inflúensunni getur hlotist, eftir því, hvernig hún hagaði sjer hjer í fyrra. Hann er svo lítilfjörlegur, þegar teflt er um líf eða heilsu landsmanna, að ekki er á það að minnast.

Jeg hefi svo ekki meira að segja af hálfu okkar flutningsmanna. Jeg vona, að hv. Alþingi taki máli þessu vel og hæstv. landsstjórn taki í sama streng. Það er og auðsætt á því, sem hún þegar hefir gert, að það er einlægur vilji hennar að verja landið og landsmenn fyrir þessari ægilegu pest.