17.02.1920
Efri deild: 5. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 468 í B-deild Alþingistíðinda. (817)

24. mál, varnir gegn spönsku innflúensusýkinni

Halldór Steinsson:

Jeg tók fram, að læknum ætti að banna að fara um borð í sýkt skip. Það er að vísu skylda að líkna erlendum sjúklingum. En sú skylda verður altaf meira eða minna „relativ“. Það er því að eins skylt að framkvæma slíka líknarstarfsemi, að hún sje ekki skaðleg þjóðfjelaginu, en það tel jeg hana, ef hún hefir í för með sjer veikindi og dauða landsins eigin barna.

Víðast hagar svo til úti um landið, að engin sjúkra- eða sóttvarnarhús eru til að taka á móti sjúklingum. Hvað á læknir í slíkum tilfellum að gera um borð í inflúensusýkt skip? Ekkert, nema að stuðla að því, að veikin berist í land, en það mun þó sannarlega ekki vera tilgangur sóttvarnarreglugerðarinnar. Það má ekki miða við önnur lönd, þar sem læknar og sóttvarnarhús eru á hverju strái, og því miklu hægra að koma einangrun við.

Þegar útlendar drepsóttir berast til landsins, tel jeg ekki rjett að offra þúsundum mannslífa fyrir að skoða ef til vill að eins einn útlending, sjerstaklega þar sem lítið meiri trygging er fyrir lífi þess útlendings, þótt læknirinn færi um borð til hans, heldur en að hann að eins færi að skipshliðinni.

Hitt er alt öðru máli að gegna, þegar svo stendur á, að á inflúensusjúkum skipum eru menn, sem hafa stórslasast eða haldnir eru öðrum sjúkdómum, sem þurfa bráðrar læknisaðgerðar; þar er lækninum auðvitað skylt að hjálpa, þótt hann þurfi að fara um borð í skipið.