26.02.1920
Neðri deild: 14. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 493 í B-deild Alþingistíðinda. (82)

Stjórnarskipti

Forsætisráðherra (J. M.):

Um utanríkismálin býst jeg ekki við, að við hv. þm. Dala. (B. J.) sjeum mjög ósammála, nje um þýðingu þá, er ytri merki sjálfstæðisins geti haft. Það er að vísu smávægilegt, er hv. þm. (B. J.) er að tala um hnappana, en jeg skal samt geta þess, að er mjer þótti ganga seint fyrir embættismenn að útvega sjer þá, þá ljet jeg kaupa þá á ríkissjóðs kostnað og ljet tilkynna embættismönnum, að þeir gætu fengið hnappana ókeypis. Ef Alþingi óskar, væri hægt að senda saumakonu út um land.

Hvað snertir utanríkisráðherra, þá skal jeg ekki segja margt. Þótt nú sjeu farin að koma allmörg utanríkismál, þá finst mjer ekki ástæða til að hafa sjerstakan mann sem utanríkisráðherra, heldur finst mjer að utanríkismálin, að því leyti sem þau eru ekki falin danska utanríkisráðherranum, geti eins og hingað til fallið undir forsætisráðherra.

Jeg get verið samdóma hv. þm. Dala. (B. J.) um heiðursmerki. Það getur komið sjer vel að hafa eitthvert slíkt merki.