17.02.1920
Efri deild: 5. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 470 í B-deild Alþingistíðinda. (821)

24. mál, varnir gegn spönsku innflúensusýkinni

Guðmundur Björnson:

Að eins tvær athugasemdir. Önnur til hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.). Hv. þm. (G. Sv.) sagði í seinni ræðu sinni, að læknar ættu ekki að veikja trú almennings á hættunni. Jeg hefi vitað til þess, síðan fólk fór að gera kröfu til sóttvarnarlækna, að ýmsir læknar hafa komið af stað sóttvörnum einungis til að þóknast því, enda þótt þeir hafi fyrirfram vitað, að það mundi ekkert gagn gera

Jeg hefi verið hreinskilinn. Jeg hefi ekki viljað slá ryki í augu fólksins, með því að telja því trú um það, sem jeg hefi vitað að væri rangt, eða halda fram óábyggilegum ráðstöfunum sem öruggum. En það er síður en svo, að jeg vilji telja það úr, að eitthvað verði gert; það mun gleðja mig, ef það tekst að verja landið. En af reynslu minni segir mjer þungt hugur um, að þetta takist.

Hin athugasemdin var til hv. þm. Snæf. (H. St.). Jeg sný mjer til stjettarbræðra minna, sem hjer eru.

Það kemur skip inn með meiddan mann, sem mæðist af blóðrás og er í háska staddur. Hvaða maður mundi neita að fara um borð og hjálpa manninum? Það kemur skip með mann, sem þjáist af þvagteppu. Hann hefir ekki getað kastað þvagi í marga daga; hann tekur út feiknarkvalir og líf hans leikur á þræði. Hvaða maður mundi neita að hjálpa manninum?

Það kemur skip með mann, er hrapað hefir ofan úr mastri. Hann er fótbrotinn og hefir mikil sár. Hann missir mikið blóð, og líf hans er að þverra smám saman. Hvaða maður mundi neita að hjálpa honum? (H. St.: Þetta eru undantekningar). Það er rjett, en maður verður að taka tillit til þeirra, eins og hv. 2. þm. Árn. (Þorl. G.) sagði, og sjá við þeim. Maður verður að taka alt með.