28.02.1920
Sameinað þing: 6. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 473 í B-deild Alþingistíðinda. (830)

58. mál, endurskoðun kosningalaganna og kjördæmaskipun

Flm. (Eiríkur Einarsson):

Jeg skal ekki tefja menn með langri ræðu.

Ástæðan fyrir þessari till. er sú, í sem fæstum orðum, að ekki þykir gerlegt að fresta umbótum í þessu máli nema sem skemst.

Um þingmannaskipunina get jeg vísað til þess, sem fram kom í þingræðum um fjölgun þingmanna í Reykjavík. Það dylst engum, að þar er endurskoðun bráðnauðsynleg. Þótt jeg væri á móti því frv., þá var það ekki af því, að jeg teldi fjölgunina ósanngjarna, heldur vildi jeg ekki slíta málið út úr samhengi, sem sje endurskoðun þingmannaskipunar alls landsins, sem í heild sinni er orðin úrelt og órjettlát og vjer væntum að komi fyrir næsta þing.

Um kjördæmaskipunina er það að segja að menn eru víða óánægðir með hana, einkum í tvímenningskjördæmum. Þykir mönnum, þar sem jeg þekki til, hagkvæmara að skifta þeim í tvent.

Um kosningaraðferðina er það ljóst, að lögin eru ekki nægilega skýr eða vel úr garði gerð, eins og best kom í ljós við kosning 2. þm. Reykv. nú síðast. Í því sambandi mætti einnig berum orðum taka fram í endurskoðun laganna, hvernig líta beri á seðla, þar sem einn maður að eins er kosinn, ef tvímenningskosningum hjeldi áfram, sem síst er að æskja.

Aukakosningalögin frá 1914 eru mjög órjettlát, þar sem farlama fólki er meinað að kjósa, nema kjörfundi sæki. Þetta hefir valdið allmikilli óánægju.

Jeg læt mjer nægja að víkja að þessu, og er þó einungis minst á fátt af mörgu.