26.02.1920
Neðri deild: 15. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í C-deild Alþingistíðinda. (854)

48. mál, laun embættismanna

Frsm. (Magnús Pjetursson):

Það var eins og við mátti búast, þegar gengið var frá launalögunum á síðasta þingi, að eitthvað myndi það fram koma við reynsluna, sem þyrfti lagfæringar við, og það hefir nú farið svo líka með fleira en eitt atriði, og þá hefir það komið fram, sem eðlilegt var, að þeim atriðum, sem lagfæra átti, hefir verið vísað til fjárveitinganefndar, en nú hefir tíma þingsins verið svo háttað, að fjárveitinganefnd hefir ekki getað komið fram með í lagaformi það, sem hún helst hefði óskað, en þetta frv. er það eina, sem hún hefir getað afgreitt frá sjer í frumvarpsformi.

Þetta frv. er nokkurskonar lögskýring. Þannig er mál með vexti, að þegar launafrv. kom frá hæstv. stjórn til síðasta þings, þá var ekki gert ráð fyrir neinni breytingu á póstlögunum, og upp í það teknir allir póstmenn, með þeim stöðum og nöfnum, sem þeir þá höfðu, og þannig kom frv. frá nefndinni, en síðar kom fram frv. frá fjárhagsnefnd, og var þá sú breyting á orðin, að nokkrar stöður póstmanna, bæði úti um land og hjer í Rvík, höfðu fengið ný nöfn, án þess að starfsvið þeirra breyttist í nokkru verulegu. Nú hefir stjórnarráðið skilið lögin þannig, að menn þessir, sem nú ganga inn í embætti með nýjum nöfnum, ættu ekki að fá aldursbætur, þótt þeir hafi gegnt sömu störfum, en undir öðru nafni. Stjórnin hefir tekið þetta bókstaflega, þótt tilætlunin væri önnur, og það þrátt fyrir, að frsm. málsins í Ed. (K. D.) tók það skýrt fram í sinni framsögu, að þessir menn fengi aldursbætur, og sama hafði hæstv. forsætisráðh. (J. M.) þá látið í ljós undir umr. Það er líka öllum skiljanlegt, að þetta hlýtur að hafa verið meining launamálanefndar í fyrra, en þó að það væri ekki neinn vitnisburður til frá mjer um anda laganna, þá væru lögin sjálf til að sanna það, því að í lögunum sjálfum, þar sem eitthvað svipað hefði getað orðið vefengt, er það beint tekið fram í 7. gr. þeirra. Segjum til dæmis, að einhver hafi gegnt stundakennarastöðu, þá skal telja starfsár hans sem embættisár, þrátt fyrir það, þótt hann hafi ekki haft fast starf.

Sama er að segja um aukapresta og aukalækna, en þá munu víst finnast menn, sem kunna að segja, að úr því að nefndin ekki tók þetta fram í launalögunum, þá hafi hún ætlast til, að farið væri eftir bókstaf laganna, en nefndinni datt ekki í hug, að lögin yrðu skýrð á þann hátt, og satt að segja varaði sig heldur ekki á þessu og athugaði það ekki nógu vel, þar sem þessi breyting varð ekki á frv. fyr en liðið var mjög á störf nefndarinnar. Jeg get nefnt ýms dæmi til að sýna það, hve fjarri sanni það er að ætlast til þess, að sumir af póstmönnunum sjeu taldir sem nýir menn í þessum störfum.

Jeg ætla þá að leyfa mjer að byrja á póstmeistaranum.

Póstmeistarinn í Reykjavík hefir verið, eins og kunnugt er, yfirpóstmeistari alls landsins. En samkvæmt ákvörðun síðasta þings hefir verið breytt um nafn hans, og heitir hann nú aðalpóstmeistari.

En breytingin er líka aðallega í þessu einu fólgin, er aðallega nafnbreyting, þó að ef til vill örlítið hafi bæst við af störfum. Getur það nú komið til mála, að okkar póstmeistari, sem gegnt hefir svo mörg ár því starfi, sje skoðaður sem spánnýr í embætti, þó breytt hafi verið um titil hans?

Þetta má líka ljóst sjá af brjefi póstmeistara til stjórnarráðsins, þar sem hann kemst svo að orði, að ef hjer sje um nýtt embætti að ræða, þá sje sjálfgefið, að hitt sje lagt niður, og kjósi hann þá heldur að komast á biðlaun.

Þá kemur póstmeistarinn á Ísafirði til athugunar. Áður hjet sá maður póstafgreiðslumaður, en nú heitir hann póstmeistari, en starfið er með öllu óbreytt.

Fyrir þessum manni stendur því alveg eins á, að hann fer á mis við þær aldursbætur, sem honum í raun og veru ber með rjettu. Hann er látinn gjalda þess, að löggjafarvaldið finnur upp á því að kalla hann öðru nafni. Og hið sama, sem um þessa hefir verið sagt, gildir einnig um hina aðra, og þarf þar ekki fleiri orðum um að fara.

En þar sem nú stjórnin þegar hefir gefið úrskurð um þetta, þá fanst nefndinni, að hún gæti ekki gert út um þá deilu öðruvísi en með lagabreytingum, því auðvitað getur ekki komið til mála, að þingið fari að koma með lagaskýringar þvert ofan í stjórnarráðið.

Annars er það dálítið einkennilegt, að að eins einn maður við pósthúsið fær aldursbætur eftir úrskurði stjórnarráðsins, en aðrir ekki.

Jeg vil svo ekki vera að þreyta deildina með umr. um einstök atriði þessarar greinar, nema ef einhver mótmæli kunna að koma fram, sem jeg á bágt með að trúa. Jeg get að vísu tekið það fram til skýringar, að frá sjónarmiði síðasta þings er hjer ekki um neinar launabætur að ræða, heldur að eins fullkomnun á því, sem það ætlaðist til.

Þá er annað atriði, viðvíkjandi fyrsta bókaverði landsbókasafnsins. Hjer er öðru máli að gegna. Þessi maður, sem hjer ræðir um, gegndi fyrst lengi störfum fyrir annan mann, en var fyrst skipaður 1. jan. 1919. Hann hefir nú farið fram á, að aldursbætur nái fyrir allan tímann, og þá líka þann tíma, sem hann var settur. Hæstv. forsætisráðherra (J. M.) hefir líka fallist á þessi tilmæli og mælt með því, að þessum óskum hans yrði fullnægt. Fjárveitinganefndin hefir sömuleiðis fallist á, að þessar kröfur sjeu sanngjarnar og vel samræmanlegar við sum ákvæði launalaganna, ekki síst þegar þess er gætt, að þessi maður hefir undanfarið borið skarðan hlut frá borði af ríkisins hálfu, eins og reyndar fleiri starfsmenn þess.

Það liggur í augum uppi, að nefndin ætlast til þess, að þessi lagfæring gangi í gildi frá sama tíma og launalögin.

Jeg vænti svo fljótrar afgreiðslu, og geri ekki ráð fyrir að þurfa að fjölyrða meira hjer um.