26.02.1920
Neðri deild: 14. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 35 í C-deild Alþingistíðinda. (888)

41. mál, Íslensk peningaslátta

Forsætisráðherra (J. M.):

Það er rjett hjá hv. þm. Dala. (B. J.), að stjórnin getur ekkert haft á móti því, að hafa heimildina. En jeg vil leggja áherslu á, að það er að eins heimild, og jeg tel ólíklegt, að heimild þessi verði notuð fyrst um sinn. En af því að nú er silfur og gull mjög dýrt, silfrið jafnvel svo dýrt, að málmverðið er meira en peningurinn sjálfur, og ekki víst, hver áhrif það hefði á gildi íslensku krónunnar, ef nú væri farið að slá íslenska peninga.