26.02.1920
Neðri deild: 14. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 35 í C-deild Alþingistíðinda. (889)
41. mál, Íslensk peningaslátta
Flm. (Bjarni Jónsson):
Jeg hafði sjálfur tekið eftir því, hve málmar eru dýrir, og taldi ekki líklegt, að þetta yrði framkvæmt í svip. En svo gæti farið, að það borgaði sig, og þá væri betra fyrir stjórnina að hafa heimildina. Jeg ætlast ekki til, að það sje annað en heimild.