27.02.1920
Efri deild: 14. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í C-deild Alþingistíðinda. (902)

41. mál, Íslensk peningaslátta

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg vil svara því, sem hv. þm. Vestm. (K. E.) beindi til stjórnarinnar. Jeg ætla, að stjórnin teldi sjer heimilt að rannsaka það með sínum eigin mönnum. Hvað því viðvíkur, að leita til annara, myndu þeir menn, er stjórnin leitaði til, ekki taka neitt fje fyrir ómakið. Enda er hjer ekki um stórfenglega rannsókn að ræða.