28.02.1920
Neðri deild: 18. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í C-deild Alþingistíðinda. (925)
57. mál, peningamálanefnd
Fjármálaráðherra (M. G.):
Það er undarlegt, að hv. þm. skuli vilja berja það fram, að þetta frv. sje í byrjun runnið undan rifjum stjórnarinnar. Fyrir því er ekki minsti fótur. Einn af bankastjórum Landsbankans á upptökin að þessu, og lagði mikið upp úr, að það kæmist í framkvæmd, og Íslandsbanki hefir tjáð sig því eindregið fylgjandi.
Það er fjarstæða, að nefnd sem þessi geti ekki haft áhrif gagnvart Íslandsbanka, því að þótt hann hafi ýms einkarjettindi, verður hann að hlíta landslögum. Og þegar nú hv. frsm. (J. A. J.) hefir skýrt frá því, að hæpið sje, að hægt sje að ráða yfir hjerlendu fje, sem er erlendis, nema nefnd sje skipuð, er undarlegt að setja sig á móti því, að stjórninni sje heimilað að gera það.
Þá er um það, hvort stjórnin geti annast þetta. Jeg held, að hún geti það ekki, og að því sje rjettast að veita henni heimild með lögum til að skipa nefnd og ákveða valdsvið hennar, og gerir hún þá hvorttveggja á sína ábyrgð. En það er ókleift, að stjórnin geti annast þetta sjálf. Þetta getur orðið svo yfirgripsmikið starf. En það er algerlega rangt, að hjer sje eitthvað einstakt á ferðinni, sem ekki sje áður þekt. Vitanlega mun stjórnin rannsaka nákvæmlega, áður nefnd yrði skipuð, hvort brýn þörf væri á henni, og ekki skipa hana, ef þörfin er eigi brýn.