28.02.1920
Neðri deild: 18. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í C-deild Alþingistíðinda. (926)
57. mál, peningamálanefnd
Jakob Möller:
Að því er hæstv. forsætisráðherra (J. M.) hefir nú lýst yfir, þá er það eitt ætlunarverk þessarar fyrirhuguðu nefndar að sporna við óþarfri eyðslu, eða eyðslu á óþörfum vörum, eða með öðrum orðum að takmarka innflutning á slíkum vörum. Til þess hefir stjórnin fengið sjerstaka heimild í öðrum lögum. Þess vegna leyfi jeg mjer að bera fram svo felda rökstudda dagskrá:
„Í trausti þess, að ríkisstjórnin geri, ef með þarf, nauðsynlegar ráðstafanir til þess að halda uppi jafnvægi í viðskiftum landsins við önnur lönd, sjerstaklega með því að banna innflutning á óþörfum vörum, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.“