28.02.1920
Neðri deild: 19. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 60 í C-deild Alþingistíðinda. (932)
57. mál, peningamálanefnd
Flm. (Jón Auðunn Jónsson):
Hv. 2. þm. Reykv. (Jak. M.) virðist hafa misskilið það, sem jeg sagði um skeytið.
— Jeg sagði, að eftir þessu skeyti væri fullkomin ástæða til að ætla, að við gætum ekki ráðið yfir því fje, sem við ættum erlendis, ef stjórnin ekki tæki í taumana; og jeg álít, að stjórnin geti ekki fengist við slíkt, heldur verði hún að skipa sjerstaka nefnd til þess, því að hvernig er hægt að ætlast til, að stjórnin geti ráðið fram úr því, ef bankarnir segja: Gerið þið svo vel, jeg get ekki ráðið fram úr þessu, nema stjórnin segi sitt álit um það? — Þetta er stjórninni ómögulegt, og jeg álít, að það þurfi mjög greinagóðan „forretnings“-mann, til að gera það.