01.03.1920
Sameinað þing: 7. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 498 í B-deild Alþingistíðinda. (94)
Þinglausnir
Bjarni Jónsson:
Jeg beiðist þess, að bókuð verði svo feld yfirlýsing frá mjer, að þar sem í Nd. hafa verið haldnir 19 fundir, 18 í Ed. og 7 í Sþ., og á þeim fundum afgr. 19 lög og 13 þingsályktunartill., og þar sem til þessarar afgreiðslu hefir þurft 57 sinnum afbrigði frá þingsköpunum í Nd., 68 sinnum í Ed. og 7 sinnum í Sþ., eða samtals 132 sinnum, þá tel jeg, í nafni kjördæmis míns, slík vinnubrögð alls eigi tryggileg fyrir þjóðina.