26.02.1920
Neðri deild: 15. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 71 í C-deild Alþingistíðinda. (946)

53. mál, flóabátsferðir um Austfirði

Atvinnumálaráðherra (P. J.):

Jeg vil leyfa mjer að hafa ofurlítinn inngang viðvíkjandi þingtímanum. Það hefir verið sagt áður, að þinginu ætti að verða lokið áður en Ísland færi, svo að þingmenn gætu farið með því; og í upphafi álitu sumir, að þinginu væri í raun og veru lokið, þegar búið væri að samþykkja stjórnarskrána og stofna nýja stjórn. Sje nú áformið um þingslitin fast, verða menn að gæta að því, að ekki er hægt að ræða alt mögulegt. Hjer má ekki tefja tímann, og hjer er því ekki tækifæri til að ræða samgöngumál, svo að nokkru gagni sje, og það hefir samgöngumálanefndin líka sjeð.

Því miður er jeg nú ekki nægil. kunnugur áætlun strandsiglingaskipanna. Jeg hygg, að þær áætlanir, sem þingið gerði í sumar, hafi verið svo, að allir hafi mátt allvel við una, og að við það megi miða. Nú, þegar truflun komst á þessa áætlun með uppsögn um bát Þorst. Jónssonar, þá býst jeg við, að þingmenn hafi hugsað sjer, að þingið bætti úr henni, þar sem skakkaföll verða mest. En varla verður það með því, að hjeruðin hvert um sig fari að draga fram hvert sinn tota í kapp við annað hjer á þingi. Samgöngumálanefndin sem heild hefir ekki heldur treyst sjer til að koma með neinar tillögur út af þeim málaleitunum, sem fyrir liggja. Og á þessum örstutta þingtíma verður varla komið á því samræmi og hagkvæmni í þessum efnum, sem þörf er á, svo þessir einstöku styrkir verði að góðum notum. En verði einhverjir styrkir veittir, þá finst mjer það hljóta að breyta að einhverju leyti áætlun.

Jeg er efins í, að fastar rútuferðir fyrir smáskip eða báta komi að bestum notum hlutfallslega til þess að fylla upp í skörðin á hinum ákveðnu ferðum. Einstakar tækifærisferðir geta oft komið að sannari notum og með minni kostnaði. Auk þessa er óvíst, hve kolavandræðin trufla hinar nýju strandferðaáætlanir. Væri jeg nú í samgöngumálanefnd, mundi jeg helst hverfa að því, eins og á stendur, að veita stjórninni einhverja fúlgu, er hún reyndi að verja til þess að bæta úr verstu ágöllum strandferðanna, og hefði hún til samráða og aðstoðar framkvæmdarstjóra Eimskipafjelagsins, sem er svo góðkunnur og þar að auki hefir með höndum stjórn landsskipanna.