26.02.1920
Neðri deild: 15. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í C-deild Alþingistíðinda. (960)
53. mál, flóabátsferðir um Austfirði
Magnús Pjetursson:
Það var engan veginn ætlun mín að vilja drepa málið með því að vísa því til samgöngumálanefndar. Heldur var það meining mín, að samgöngumálanefndin skyldi athuga till. hæstv. atvinnumálaráðh. (P. J.) um allar samgöngurnar, og kæmu þá styrkbeiðnir hv. flm. jafnt til greina sem aðrar, því það er vitanlegt, að fleiri svæði muni þurfa bátastyrk heldur en þau ein, sem þegar eru komnar fram tillögur um.