14.02.1920
Neðri deild: 4. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í C-deild Alþingistíðinda. (984)
2. mál, vatnalög
Sigurður Stefánsson:
Út af fyrirspurn hv. 1. þm. Rang. (Gunn. S.), hvort jeg vilji ekki taka aftur hina rökstuddu dagskrá mína, þá svara jeg því, að jeg vil það ekki. Jeg gekk ekki að því gruflandi, að henni yrði mótmælt — enda hefir sú raunin orðið á, og nú álít jeg, að fossamálið hafi ekkert gott af því að vera sett í nefnd.
Stjórnin játar því, að hún hafi ekki haft tök á því að afla sjer upplýsinga um málið, og hún á þó óneitanlega hægara með það en þingnefnd.
Jeg verð að frábiðja mjer þær getsakir hv. 1. þm. Árn. (E. E.), að hjer liggi nokkur fiskur undir steini. Jeg þykist hafa engu minni áhuga á fossamálunum en hv. þm. Austanverja.
Þegar þingið vísar máli til stjórnarinnar, og þegar stjórnin leyfir sjer að leggja málið ókarrað fyrir þingið aftur, þá er eina rjetta aðferðin að fá henni málið aftur í hendur. Virðingu þingsins er misboðið með framkomu stjórnarinnar, að hún skuli leyfa sjer að koma með málið í slíku ásigkomulagi og það er í. Að vissir þm. hafi meiri formlegan rjett til þess að tala um málið en aðrir, það skortir mig skilning til að skilja.