14.02.1920
Neðri deild: 4. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 116 í C-deild Alþingistíðinda. (987)
2. mál, vatnalög
Gísli Sveinsson:
Jeg vil leyfa mjer að mótmæla því, að svo kölluð vatnahjeruð austanfjalls hafi nokkurn sjerstakan rjett til þess, frekar en önnur hjeruð landsins, að fara að grauta í vatnalögunum, þar sem öllum kemur saman um, að ekkert verði til gagns gert á þessu þingi, en öllum ætti að vera það fyrir mestu, að málið fengi þá athugun, sem þingið í fyrra stofnaði til að það fengi, áður en farið yrði að ráða því til lykta.
Þótt þessi hjeruð hafi góð vötn rennandi um sig, þá neita jeg því, að þessir menn hafi nokkurn sjerstakan rjett að fá nálin inn á þingið nú, enda hefi jeg eigi heyrt annað á mörgum þessara fulltrúa en að þeir hafi ekki hugsað sjer annað en að þessi mál færu aftur út úr þinginu án frekari aðgerða.
Þm. S.-Þ. (P. J.) vildi láta taka sjerstaklega fyrir annað mál, sem ekki er fram komið enn þá, en þetta er á móti þingsköpum. Og það er enginn vafi á því, að það er óþarft að fara að skipa sjerstaka nefnd í mál, sem ekki er komið fram enn, enda er það svo, að þetta mál heyrir alveg eins vel undir fjárhagsnefnd eins og fossanefnd, en auðvitað mætti þó skipa sjerstaka nefnd til þess að athuga það. Hv. þm. Ak. (M. K.) þarf jeg ekki að svara; hann fór ekkert út í það, sem okkur greindi á um.
Og í tilefni af því, er hv. þm. sagði, að jeg hefði sagt, að hann væri að gera gælur við hæstv. atvinnumálaráðh. (S. J.), skal jeg geta þess, að gælurnar komu ekki harðast niður á hæstv. atvinnumálaráðh. (S. J.), heldur á þeim, sem næstir honum standa, og eru því engin meiðyrði í því. En hvað snertir þau orð mín, að hann væri nokkuð laus á kostunum, að þau sjeu ósæmileg, þá voru þau að minsta kosti eins fyndin eins og það, sem hann sagði um mig, að jeg væri nokkuð víxlaður á góðganginum.
Þegar hv. þm. (M. K.) komst inn á efnið, vildi hann, að þingið lýsti yfir því, hvort það vildi veita sjerleyfi eða ekki. En það er nú einmitt, sem helst þarf sjerstaks undirbúnings með, og það er þess vegna ein af þeim síðustu spurningum, sem þurfa að koma fyrir alla hv. þm. og þessa þjóð.