14.02.1920
Neðri deild: 4. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 118 í C-deild Alþingistíðinda. (990)

2. mál, vatnalög

Forsætisráðherra (J. M.):

Það er að eins stutt athugasemd. Jeg minnist þess ekki, að því hafi verið neitað að taka mál út af dagskrá, þegar sá ráðh., sem borið hefir fram málið, hefir æskt þess, og hefir það þá venjulega verið leyft án atkvgr., en annars skal jeg ekkert leggja sjerstakt til þessa máls.