15.02.1921
Sameinað þing: 1. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í B-deild Alþingistíðinda. (10)
Rannsókn kjörbréfa
Sigurður Eggerz:
Mjer virtist ræða hv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.) benda á nokkurn óróa í sálinni, en í málum eins og þessu er meiri þörf á kaldri ró, því í þeim málum sitja þingmenn í dómarasæti.
Háttv. þm. (Jak. M.) sagðist furða sig á því, að kæran kom fram. Jeg verð að segja, að bæði mig og marga fleiri furðaði á þessum orðum hans. Allir virðast sammála um það, að kosningin er svo stórgölluð, að hana má telja alveg ólöglega. En þegar svo er, er varla ástæða til undrunar, þótt kæra komi fram. Jafnvel þótt kosningin yrði tekin gild, á kjósandinn, er kærði, þakkir skilið fyrir að hafa gefið þinginu tækifæri, þó ekki væri til annars en að víta lögleysuna.
Um það virðist ekki einu sinni ágreiningur, að lögleysur hafi verið framdar. Framsögumenn 1. og 2. kjörbrjefadeildar töldu sjálfsagt að víta aðgerðir bæjarstjórnar og kjörstjórnar, og þm. N.-Þ, (B. Sv.) lagði svo mikla áherslu á gallana, að hann taldi þá fullkomna ógildingarsök.
Það er öllum vitanlegt, að aukakjörskráin var samin á ólöglegum tíma. Þetta er alvarlegt atriði og gat vel breytt úrslitum kosningarinnar, þar sem það breytti kjósendatölu að miklum mun.
Jeg vil víkja að einu atriði, sem mjer virðist mjög vítavert, og jeg er viss um, að Alþingi vill ekki láta koma fyrir aftur. Það er hægt að sanna, að ýmsir kjósendur fengu ekki að greiða atkvæði, enda þótt kosningu væri ekki lokið. Einn kjósandi kom til mín og kvaðst ekki fá að kjósa, þar eð hans kjördeild (8. kjördeild) væri lokuð, en þær, sem opnar væru, hefðu ekki kjörskrár úr hans deild. Og bað maðurinn mig reyna að fá þetta leiðrjett. Jeg sneri mjer til 8. kjördeildar, sem var í Iðnaðarmannahúsinu. Formaður kjörstjórnar þar var Klemens Jónsson, fyrv. landritari. Landritari snerist vel við og bað mig fara með kjörskrárnar yfir í Bárubúð. Það gerði jeg, og þar fjekk maðurinn að kjósa. Annar kom til mín úr 7. kjördeild með sömu málavöxtu. Þar var búið að innsigla kjörskrárnar, og varð engu um þokað, en sá maður kaus ekki. Nú kunna menn ef til vill að segja, að það hafi aðeins verið fáir, sem þannig voru útilokaðir frá að kjósa, en um hvað margir þeir hafi verið er ekki hægt að fullyrða neitt, því að fregnin barst út um allan bæ, að menn fengju ekki að kjósa, og veit enginn um, hvað margir þess vegna hafa verið fjarverandi. Þá geta hlutdrægar kjörstjórnir tekið þann sið upp að loka eftir geðþótta og útiloka andstæðinga sína. Vjer megum ekki skapa fordæmi, sem getur orðið hættulegt í framtíðinni. Jeg vona, að háttv. Alþingi sje mjer sammála um það.
Það skein í gegn um ræðu háttv. þm. N.-Ísf. (S. St.), að hann var deigur í því að ráða til að kosningin væri samþykt. Hann er vanur að tala fastara í þeim málum, sem hann fylgir af fullum hug.
Háttv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.) sneri sjer að mjer, og var að tala um vonbrigði. Jeg veit ekki við hvað hann á. Ef hann á við væntanlegt kosningabandalag sitt við stjórnina, þá verð jeg að segja það, að mig undrar það alls ekki. Það er áframhald frá í fyrra. Og jeg býst við áframhaldi. Kosningarnar, sem fram eiga að fara hjer í Sþ. í dag, munu sýna, að hv. þingm. er einn með í því, að gefa stjórninni nokkurs konar traustsyfirlýsingu. Og mjer eru það engin vonbrigði.
Annars geri ég nú ráð fyrir, að háttv. þm. (Jak. M.) hætti að telja sig stjórnarandstæðing. Kosning forseta sameinaðs þings, sem bráðum mun fram fara, verður traustsyfirlýsing til núverandi stjórnar, og býst jeg við, að háttv. þm. eigi drjúgan þátt í henni.
Háttv. þm. (Jak.M.) sagði, að jeg hefði sagt, að kæra þessi skyldi koma fram, en ekki sagði jeg það. En í samtali við hann og Jón Baldvinsson sagði jeg, að kosningin væri svo gölluð, að hún ætti að ógildast ex officio. í málum eins og þeim, sem hjer er um að ræða, hefi jeg aldrei látið flokksfylgi ráða. Get jeg með tilvísun til fyrri atkvæðagreiðslu sýnt, að jeg hafi í þeim málum greitt atkvæði með andstæðingum mínum.
Að endingu vil jeg leyfa mjer að mælast til, að frestunartill. í máli þessu verði fyrst borin upp. Það er nauðsynlegt, að þingmönnum gefist sem best tækifæri til að rannsaka öll málsatvik, en enginn má byggja atkvæði sitt á órökstuddum söguburði.