25.04.1921
Neðri deild: 51. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 945 í B-deild Alþingistíðinda. (1039)
10. mál, útflutningsgjald af síld o. fl.
Magnús Jónsson:
Jeg hafði hugsað mjer að svara hæstv. fjrh. (M. G.) nokkrum orðum, en get nú að mestu sparað mjer það, þar sem háttv. þm. Ak. (M. K.) hefir gert það svo rækilega. Það er annars einkennilegt um þennan atvinnuveg — síldveiðarnar —, að hann virðist hafa eignast óvini, undarlega marga og illvíga. Þeir þreytast aldrei á því, að tönlast á spillingu hans og illum áhrifum. Sannleikurinn er samt sá, að hann hefir veitt út frá sjer afskaplegu fje til fólks; heilir bæir hafa lifað á honum, og þetta hefir komið tiltölulega jafnt og vel niður á fólkinu. Sumir hafa kent síldveiðunum um kauphækkunaröldu þá, sem alment hefir gengið yfir og haft áhrif á miklu fleiri sviðum. En bæði jeg og aðrir hafa áður sýnt fram á það, hver fjarstæða slíkt er. Að vísu getur það oft komið fyrir, að atvinnuvegirnir rekist að einhverju leyti á í þessu efni, en þá er það rangt af ríkinu að láta það bitna frekar á einum en öðrum af þeim atvinnuvegum.
Svo er það eitt atriði í þessu sambandi, sem hæstv. fjrh. (M. G.) talaði órjettlátlega um, og það var þegar hann talaði um dugnaðar- og útsjónarmennina, sem þátt taka í þessum atvinnuvegi. Það er sem sje kunnugra en frá þurfi að segja, að þar fer ekki alt ávalt eftir dugnaðinum og útsjónarseminni einni saman, og það er vandi að skera úr því, hvar á að setja takmörkin. Stundum geta menn beinlínis tapað á varfærni og fyrirhyggju á móts við hina, sem tefla, jeg vil segja óleyfilega, á tvær hættur, og iðulega stoðar dugnaðurinn ekkert, þegar í öngþveiti er komið af óviðráðanlegum atvikum. Þessi atvinnugrein er svo sjerstök í þessu, som sumu öðru. Þetta getur alt brugðist til beggja vona. En í rauninni, jafnvel þó svo væri, að þessi skattur lenti aðallega á þeim duglegustu og útsjónarsömustu, þá er það ekkert einsdæmi um þetta skattgjald, því svo er það jafnan. Skattalöggjöfin byggist á þessu, að taka af dugnaðarmönnunum og þeim, sem einhvers hafa aflað.
Það, sem hæstv. fjrh. (M. G.) talaði um mismun verðlagsins hjá mismunandi útgerðarmönnum, var einnig bygt á misskilningi. Fyrst og fremst getur verðmunurinn í rauninni aldrei verið ýkjamikill, og má sjá slíkt í hendi sjer, ef maður er kunnugur þessu máli. Flest það, sem hjer að lýtur, er fast og óbifanlegt. Síldin er seld fyrir nálega sama verð úr skipi, hver sem í hlut á. Verð á tunnum, salti, verkun o. fl. er sama hjá hverjum sem er það og það sumarið, svo að segja má, að á hverjum síldveiðatíma myndist fast framleiðsluverð, sem ekki skakkar nema í örsmáum stíl hjá einstaklingunum. Þar að auki gleymdi hæstv. ráðh. (M. G.) alveg ákvæðinu um staðfest vottorð lögskipaðs miðlara, og ætti það þó að vera einhvers virði, til tryggingar í þessu tilfelli. Að vísu gæti komið fram einhver smávegis munur, en enginn ætti þó að geta dregið undan svo neinu næmi. Það mundi þegar standa bert og nakið fyrir hverjum manni.
Jeg vil svo að endingu taka það fram, að jeg hefi ekki af þessum umræðum getað sannfærst um það, að fyrri skoðun mín í þessu máli væri röng, og mun því að sjálfsögðu halda fast við hana. Enda liggur það í augum uppi, að rangt er að láta þörf ríkisins eina ráða því, að ætla að taka af því, sem ekki er til. Og eins og ástatt hefir verið um þennan atvinnuveg upp á síðkastið, þar sem menn hafa orðið að kasta afurðum hans í sjóinn, og peningum svo að segja með, er það bersýnilegt, hve gífurlega órjettmætt er, að ætla að fullnægja þörfum ríkissjóðs á því, að leggja, þó ekki sje nema 1 krónu, á hverja tunnu, sem menn eru áður búnir að tapa stórfje á. Hinsvegar mundi verðtollur, þó hann væri þrisvar sinnum hærri, koma rjettlátar niður, þar sem menn geta stundum grætt á litlu síldar-„partíi“ með góðri sölu meira en menn græða annars á heils árs útgerð í illu meðalári. Og á slíkan uppgripagróða á og má leggja.