12.05.1921
Efri deild: 68. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 955 í B-deild Alþingistíðinda. (1051)
10. mál, útflutningsgjald af síld o. fl.
Frsm. (Guðmundur Ólafsson):
Frv. þetta er komið frá Nd. og hefir tekið þar dálítilli breytingu á 2. gr. Fjhn. þessarar deildar hefir lagt til, að gerð yrði við sömu gr. ofurlítil breyting, en jeg hygg, að nefndarálitinu hafi eigi verið útbýtt ennþá. (Margir þm.: Jú, því er útbýtt). Jæja, jeg hefi ekki orðið var við það.
Breyting Nd. á 2. gr. fer í þá átt, að í hana er bætt ákvæði um, að endurgreiða megi hjerlendum ríkisborgurum 2/3 útflutningsgjalds síðar, ef þeir sanna, áður en ár er liðið frá útskipun hennar hjer, að hún hafi selst undir kostnaðarverði. Þetta er að vísu nokkuð mikið, sem á að endurgreiða, en þó verður að telja sanngjarnt, að menn fái endurgreiddan mestan hluta útflutningsgjaldsins, þegar sannað er, að atvinna þessi er rekin með tapi. Aðeins að þetta ákvæði leiði ekki til þess, að fleiri reki síldveiðar með tapi þess vegna. Brtt. nefndarinnar er aðeins til þess að skýra Nd.-tillögurnar. Reyndar er nefndin ekki vel sammála um orðalag till. Nokkrum nefndarmönnum finst till. illa orðuð, og skal jeg fyrir mitt leyti ekki draga dul á, að jeg tel orðalag hennar hálfgert hnoð. En þar sem vitanlega er meira undir því komið, að lögin sjeu glögg og greinileg en að þau sjeu fallega orðuð, og samkomulag náðist ekki um betra orðalag en þetta, leyfi jeg mjer að leggja til, að brtt. verði samþ. og frv. með henni.