11.04.1921
Efri deild: 40. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 987 í B-deild Alþingistíðinda. (1083)

3. mál, fasteignaskattur

Fjármálaráðherra (M. G.):

Jeg hefi tekið það fram áður, að jeg er því alls ekki mótfallinn, að skattur þessi verði hækkaður, ef fært þykir; en það er vandlifað fyrir mig, þegar sömu till. þykja of háar í Nd., en of lágar hjer. Þetta er mjer nokkurskonar sönnun fyrir, að jeg hefi einmitt hitt hinn rjetta meðalveg. Háttv. 4. landsk. (G. G.) vill halda lausafjárskattinum. Það vil jeg ekki. Jeg vil ekki, að landbúnaðurinn greiði tvöfaldan skatt. Jeg vil, að hann greiði tekjuskatt og eignarskatt, en ekki lausafjárskatt. Og enginn getur neitað því, að það er langsanngjarnast að borga aðeins skatt af tekjum og skuldlausum eignum. Hitt er ósanngjarnt, að greiða sama skatt, hvort sem vel gengur eða illa, en þannig er lausafjárskatturinn. Jeg er því hissa á, að hv. 4. landsk. (G. G.) skuli mæla með honum, slíkur landbúnaðarvinur, sem jeg veit að hann er.