17.02.1921
Neðri deild: 2. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1019 í B-deild Alþingistíðinda. (1151)

41. mál, fjárlög 1922

Fjármálaráðherra (M. G.):

Jeg býst við, að flestum háttv. þingmönnum hafi orðið það, er þeir fengu þetta frv., að gæta að, hvort gert væri ráð fyrir tekjuhalla á árinu 1922, og að þeim hafi brugðið í brún, er þeir sáu í 20. gr. frv., að þar er gert ráð fyrir nærri 2 milj. kr. tekjuhalla. En þetta er ekki eins slæmt og út lítur fyrir, og vil jeg í þessu efni vísa til athugasemdanna við frv., því að þær skýra hvernig á þessu stendur. Hjer vil jeg sýna fram á, að ef tillögur stjórnarinnar í skattamálum ná fram að ganga, er ekki búist við neinum tekjuhalla 1922.

Eins og frv. sýnir, er gert ráð fyrir að gjöld á árinu nemi kr. 8786210.69.

En ef skattafrv. stjórnarinnar ganga fram eins og þau eru nú, má gera ráð fyrir, að tekjurnar verði sem hjer segir.

taldar í þúsundum:

1.

Fasteignaskattur ............... 240

2. Tekjuskattur og eignarskattur 1000

3. Aukatekjur....................... 150

4. Erfðafjárskattur ................. 50

5. Vitagjald .......................... 150

6. Leyfisbrjefagjöld ............ 10

7. Útflutningsgjald af síld .. 300

8. Áfengistollur .................. 200

9. Tóbakstollur ................ 750

10. Kaffi- og sykurtollur ..... 750

11. Te o. fl. tollar ............ 150

12. Vörutollur ............................ 1500

13. Gjald af konfekt og brjóstsykri ..5

14. Stimpilgjald ................. 500

15. Pósttekjur ..................... 300

16. Símatekjur .......................... 1100

17. Tekjur af tóbaks- og vínverslun. 640

18. Bifreiðaskattur.......................... 40

19. Lestagjald af skipum ...... 50

20. Hækkun sóknargjalda ............85

21. Tekjur samkv. 3. gr. frv. ... 390

22. Tekjur samkv. 4. gr. frv. ... 500

23. Tekjur samkv. 5. gr. frv. .... 20

Samtals kr. ............8900 þús.

Af þessu yfirliti sjest, að búist er við, að tekjurnar hrökkvi rúmlega fyrir gjöldum, en jeg get búist við, að háttv. fjárveitinganefnd þyki sjer markaður nokkuð þröngur bás með þessari áætlun, og skal jeg að sönnu játa, að svo er, og er það raunar heldur eigi meining mín, að hún megi ekki hækka lítið eitt gjöldin, ef brýn ástæða þykir til, en þess vil jeg biðja bana umfram alt, að hækka ekki gjöldin í tillögum sínum meira en hún telur alveg óhjákvæmilega nauðsyn. Jeg geri mjer mikla von um, að háttv. nefnd muni ekki í þetta skifti hækka gjöldin nærri eins mikið og hún hefir gert undanfarin ár, bæði af því, að jeg ber það traust til hennar, að hún sjái, að hin mesta nauðsyn er að spara á hinum erfiðu tímum, sem nú standa yfir, og af því, að jeg vona, að nefndin finni óvíða ástæðu til að hækka áætlunarliði stjórnarinnar, eins og oft hefir þótt brenna við áður, því að það hefir verið reynt, er frv. var samið, að horfast beint í augu við dýrtíðina og áætla engu lægra en ætla mætti, að kostnaður yrði, eftir því útliti, sem var, þá er frv. var samið. Og einmitt þess vegna eru gjöldin nú áætluð miklu hærri en nokkru sinni áður. Jeg vona, að nefndin virði þessa viðleitni og gjaldi hana með hóflegum tillögum frá sjer, hafandi það hugfast, að útlitið er ískyggilegt og alt annað en það var t. d. 1919.

Um tekjur þær, sem nefndar voru, vil jeg geta þess, að þær hefi jeg áætlað alveg eins og jeg tel líklegast að þær verði. En að sjálfsögðu verður að gæta þess, að þar sem sumar af tekjugreinunum eru nýjar og aðrar töluvert breyttar, er allmiklum erfiðleikum bundið að áætla þær. Sjerstaklega er tekju- og eignarskattur á þessum tímum töluvert vafasamur. Það er þó sannfæring mín, að ekki sje óvarlegt að búast við hinum áætluðu tekjum, ef ekkert óvænt kemur fyrir. Hinsvegar vil jeg taka það skýrt og greinilega fram, að það er með öllu óforsvaranlegt að hækka þessa áætlun, því að í henni er, eins og tekið hefir verið fram, áætlað eins hátt og fært er, og það meðfram vegna þeirrar stefnubreytingar, sem kom fram í þessu 1919, sjerstaklega í háttv. Ed. Ef svo fer móti von minni, að háttv. fjárveitinganefnd sjái sjer ekki fært að láta sjer nægja að ráða yfir þeim rúmum 100 þús. kr., sem tekjurnar eru áætlaðar umfram gjöldin, eða tekjufrv. verður breytt til lækkunar eða eitthvað af þeim felt, er alveg óumflýjanlegt að bera fram nýja tekjuauka, því að þótt jeg verði að telja það mjög varhugavert að leggja þyngri skattabyrði á þjóðina en hjer er ráðgert, verð jeg þó að telja það enn varhugaverðara að ganga svo frá fjárlögunum, að fyrirsjáanlegur halli verði á landsreikningnum. Þjóðarbúskapurinn verður að bera sig; um það vona jeg að öllum komi saman.

Ef til þess óyndisúrræðis verður að taka, að auka tekjurnar fram yfir það, sem hjer er ráðgert, sje jeg ekki annan útveg til þess en að setja útflutningsgjald á landbúnaðar- og sjávarafurðir, svo mjög sem jeg þó er mótfallinn slíkum skatti, sem eftir eðli sínu hlýtur fremur að lama framleiðsluna, og auk þess kemur ekki rjettlátlega niður. — Verði það ofan á hjá hinu háa Alþingi að hækka gjöldin eða draga úr tekjunum, mun þó naumast annar vegur fyrir hendi, og mundi jeg þá sætta mig við það, þó þannig, að það yrði aðeins bráðabirgðaráðstöfun, er fjelli úr gildi þegar dýrtíðin minkaði og gjöldin þar af leiðandi lækkuðu. En eins og jeg þegar hefi vikið að, tel jeg þessa aðferð eigi rjetta. Hitt tel jeg aftur á móti rjett, að draga úr framkvæmdum, meðan dýrtíðin er svo gífurleg, sem nú er, til þess að komast hjá því að íþyngja atvinnuvegum landsins um of, einkum nú, er þeir stynja undir þrælsoki dýrtíðarinnar.

Um áætlun símateknanna hjer að framan verð jeg að geta þess, af því að hún er 100,000 krónum hærri en frumvarpið segir, að hækkun þessi er gerð af því, að það hefir komið í ljós síðan frv. var samið, að tekjur þessar síðastliðið ár verða eitthvað yfir 1 milj. kr., ef til vill um 1 milj. 100 þús. kr., og minni ættu þær ekki að verða 1922.

Jeg skal játa það, að þetta frv., sem hjer liggur fyrir, gerir ekki ráð fyrir miklum framkvæmdum, og er það í samræmi við það, sem jeg sagði áður, um nauðsynina á að íþyngja eigi landsmönnum um of með sköttum. Einstaklingarnir taka nú það ráð að draga úr framkvæmdum, og hið sama verður ríkið að gera. Það má og minna á það, að fjárlögin eru ekki einasta framkvæmdaheimildin, sem stjórnin hefir, því að hún hefir heimild til brúagerða, símalagninga og húsabygginga eftir sjerstökum lögum. Og ef fært verður, munu þessar heimildir verða notaðar eitthvað, og til þess notaðar eftirstöðvar lánsins frá 1920, en varlega verður í slíkt að fara, nema ástandið breytist verulega til batnaðar. Á tímum eins og þeim, sem nú standa yfir, verðum vjer að láta oss nægja hægfara framsókn, og það er áreiðanlega hollara en safna stórskuldum á eftirkomendurna, vegna þess hve allar framkvæmdir eru óheyrilega dýrar.

Jeg get ímyndað mjer, að einhverjir hinna háttvirtu deildarmanna undrist það, að jeg hefi ekki hjer að framan talið neitt fyrir væntanlegum fjáraukalögum 1922, nje fyrir gjöldum samkvæmt sjerstökum lögum. En þetta er með vilja gert, og ástæðan er sú, að jeg geri mjer von um, að dýrtíðin minki töluvert á þessu ári. Jeg býst til dæmis við, að naumast þurfi að búast við, að dýrtíðaruppbót verði 1922 yfir 100%, en í frv. er alstaðar gert ráð fyrir 120% uppbót. Útlitið hefir breyst nokkuð síðan frv. var samið. Enn fremur má benda á, að í frv. er gengið út frá 200 kr. verði á kolasmálest, en alt útlit fyrir nú, að þau muni ekki kosta meira en rúmar 100 kr. Fleiri lækkanir mætti nefna, en út í það skal ekki farið nú. En ef dýrtíðaruppbótin lækkar um 20% og kol eins og að ofan er greint, mun það ásamt öðrum lækkunum, sem sennilegar eru, nema um 1/2 milj. kr., og þessi fjárhæð ætti að nægja fyrir aukafjárveitingum 1922.

Jeg mundi þora að leggja út á árið 1922 með þessa áætlun, sem að framan er greind. en vil jafnframt taka það fram, að tæpara má ekki áætla.

Í þetta skifti skal jeg þá ekki fara fleiri orðum um þetta frv., en skal aftur á móti fara nokkrum orðum um árið 1920 og hag ríkissjóðs í lok þess. Áætlun fyrir yfirstandandi ár mun aftur á móti bíða til framhalds þessarar umr., eins og venja hefir verið til.

Um tölur þær, sem jeg tilfæri hjer, vil jeg geta þess, að með því að ennþá er töluvert ógreitt af gjöldum ársins 1920, og alveg allar tekjur eigi heldur komnar fram. munu tölur þessar breytast nokkuð, en veruleg áhrif getur það eigi haft. Þegar alt kemur til alls, getur ef til vill munað 1–2 hundr. þús. kr., en naumast meiru.

Samkvæmt bráðabirgðayfirliti, sem samið hefir verið, nema tekjur og gjöld 1920 því, sem hjer segir, talið í þúsundum: