23.04.1921
Neðri deild: 50. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1174 í B-deild Alþingistíðinda. (1201)

41. mál, fjárlög 1922

Þorleifur Guðmundsson:

Það er um 31. lið d. við 16. gr., um að dýpka siglingaleiðir inn til Stokkseyrar, að jeg finn ástæðu til að segja nokkur orð. Jeg mundi ekki hafa tekið til máls, ef hæstv. atvrh. (P. J.) hefði ekki ráðist á þessa styrkveitingu, án þess að færa nokkur gild rök fyrir skoðun sinni.

Hann sagði, að þetta væri að kasta peningum í sjóinn. Það er satt. En það er hjer ekki sama og að glata þeim. Það á að nota þá til þess að sprengja sker, sem eru í sjónum, til þess að skip geti farið óhult leiðar sinnar. Þessi upphæð er smá, en hún verður að meira gagni heldur en margar þær, sem stærri eru. Jeg vil þakka háttv. nefnd, að hún var nógu vitur til að sjá, að ekki mátti ganga fram hjá þessari styrkbeiðni. Jeg skal svo gera lítillega grein fyrir, hvernig hún getur komið að gagni.

Það ganga um þessa leið um 20 vjelbátar með 200 manns. Í hvert sinn sem bátur leggur út, er skipshöfnin í óvissu um, hvort hún komist inn aftur, og þá hvenær. Það þarf að dýpka leiðina þar, sem brimið er mest. Allir kunnugir vita, að það er engin skemtun að liggja úti á hafinu og vita ekkert um, hvort komist verði til lands. Það er að vísu stundum hægt að bjargast inn til Þorlákshafnar, en það er mjög ilt viðureignar. Jeg man eftir tveimur bátum, sem hafa farist þarna nú nýlega. Annar kom frá Þorlákshöfn og hann fórst með manni og mús. Hinn kom frá Reykjavík. Þegar hann kom á þessar stöðvar, treystist hann ekki til að leggja að. Báturinn fórst, en skipshöfnin bjargaðist fyrir tilviljun.

Jeg vona, að háttv. þm. meti mannslífin meira en þessa fáu peninga. Það má líka gæta þess, að þessir peningar koma áreiðanlega aftur í ríkissjóð. Þessir bátar gáfu í fyrra um 4 þús. kr. í ríkissjóð. En ef þessi dýpkun gengur vel, er enginn vafi á því, að þeir geta gefið í það minsta einu þúsundi meira á ári. Mun þetta þá verða endurgreitt á 10–12 árum, með vöxtum og vaxtavöxtum. Oft hefir lán verið veitt til lengri tíma, og þótt viturlega ráðið.

Kirk heitinn verkfræðingur áætlaði kostnaðinn 1916. En vegna verðfallsins, sem síðan hefir orðið á peningum, fjekk jeg Krabbe vitamálastjóra til þess að snara áætlun hans á nútíðarverð, og reyndist það 22 þús. og 800 kr.

Jeg skal líka geta þess, að jeg finn til þess, að hið háa Alþingi hefir áður veitt fje til hafnarbóta hjá Stokkseyri. En þetta stendur ekkert í sambandi við það. Þessi styrkur er einungis ætlaður til þess að víkka út innsiglingarleiðina, sjerstaklega til að sprengja burtu sker, sem er í innsiglingunni.

Jeg vil svo geta þess, að mjer finst þessi fjárveiting eiga fullan rjett á sjer, samanborið við ýmsa styrki, t. d. til íþróttamanna, og jeg tala nú ekki um eftirlaunin. Og þá þætti mjer færast skörin upp í bekkinn, ef þessi fjárveiting væri látin sitja á hakanum fyrir áðurnefndum styrkjum, þar sem þetta miðar beinlínis að því að afla meiri peninga.

Jeg vona nú, að jeg hafi skýrt þetta nokkurnveginn fyrir háttv. deild, svo hún hafi sjeð, að þótt hæstv. atvrh. (P. J.) hafi hjer verið fljótur að hugsa, hafi hann ekki að sama skapi hugsað vel.

Þá langar mig til að minnast örlítið á annað, og það er hreppstjórastyrkurinn. Þau tíðindi gerast nú, að allmargir hreppstjórar eru farnir að reka upp höfuðið hjer í deildinni. Jeg skal játa það, að þetta eru heiðarlegir menn, sem og líka flestir hreppstjórar eru. En þrátt fyrir það finn jeg enga ástæðu til þess að veita þeim nein heiðurslaun, því að sje það gert, má búast við, að oddvitarnir lalli á eftir, því að það eru heiðarlegir menn líka. Og þar á eftir má búast við bændum og sjómönnum og öðrum verkamönnum, því að alt eru þetta heiðarlegir menn, og svo eru flestir embættismenn, sem ekki eru í embættum, komnir á eftirlaun. Verður maður því að spyrja, hverjir eiga þá að vinna og borga.

Jeg ætla nú eigi að fara fleiri orðum um þetta, því að jeg veit þá ekki nema jeg spilli fyrir styrkbeiðni þeirri, sem jeg hefi leyft mjer að flytja.