23.04.1921
Neðri deild: 50. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1180 í B-deild Alþingistíðinda. (1203)

41. mál, fjárlög 1922

Jón Sigurðsson:

Það er út af 30. lið 16. gr. í fjárlagafrv. stjórnariimar, sem er styrkur til Sigurðar Ólafssonar á Hellulandi, að jeg stend upp.

Það eru nú helst líkur fyrir því, að svo margir hreppstjórar hlaðist utan á hann, að þeir verði honum að fótakefli. Jeg vil því leyfa mjer að skýra háttv. deild frá starfi þessa manns, ef verða mætti, að það gæti orðið honum til styrktar hjer í deildinni. Þegar hann byrjaði búskap, var hann efnaður maður. En hugur hans hneigðist að öðru, því að hann var hugvitsmaður, og slíkum mönnum er ekki búsýsla hent. Hugurinn var því of fjarri, til þess að búskapurinn gæti blessast. Enda er það nú komið á daginn, því að nú eru efni hans gengin mjög til þurðar. Hann hefir lagt fram því nær alla sína krafta til þess að hugsa upp áhöld og verkfæri, sem okkur gætu að gagni komið, og mætti þar til nefna ,,rakstrarkonuna“, sem svo er nefnd, sem nú er orðin útbreidd víðsvegar um land og þykir hinn mesti kostagripur, bar sem hún á við.

Hefði þessi maður dvalið meðal efnaðrar og fjölmennrar þjóðar, væri hann án efa orðinn viðurkendur hugvitsmaður og jafnvel orðinn efnaður fyrir hugvitssmíðar sínar. Okkur Íslendingum er flestum þjóðum fremur þörf slíkra manna, þar sem kalla má, að tæplega nokkurt útlent verkfæri, sem ætlað er til starfa í þágu landbúnaðarins, verði notað hjer óbreytt. Við verðum sjálfir að breyta útlendu vjelunum eða smíða nýjar við okkar hæfi. Þetta er torsótt starf og þýðingarmikið, og ber því að verðlauna það, sem vel er gert. öðrum til hvatningar.

Jeg vona nú, að háttv. deild sýni það í verkinu, að hún viðurkenni þetta, og samþykki orðalaust þennan litla viðurkenningarvott til þessa manns.

Úr því jeg stóð upp, vil jeg drepa á nokkur atriði önnur. Jeg vil þá fyrst minnast á styrkinn til búnaðarfjelaganna. Mjer þótti vænt um, að nefndin tók hann upp. Ef hún hefði ekki gert það, þá er mjer kunnugt um, að nokkrir þdm. voru ráðnir í að bera fram samskonar till. Þessi styrkur er ein af undirstöðunum undir búnaðarfjelagsskapnum á útkjálkum strjálbygðra sveita. Allir vita, hve erfitt er að halda saman nokkrum fjelagsskap í mjög strjálbygðum sveitum, þar sem kalla má, að hvert heimili verði sjerstakt ríki, sem verður að vera sjálfu sjer nóg. Þessi styrkur hefir hjálpað mjög mikið til að halda við fjelagsskapnum, þótt lítill sje. En það er rjett, að það verður að tryggja, að honum verði varið til sameiginlegra þarfa, svo sem til verkfærakaupa, verðlauna o. fl. Stjórnin getur falið sýslumönnum að úthluta styrknum, og krefjast þá þeirra skýrslna, sem með þykir þurfa.

Annað, sem jeg vildi minnast á, er brtt. háttv. þm. Borgf. (P. O.), um lán til þess að koma á fót kjötniðursuðu í Reykholtsdal. Þetta mál hafði einmitt landbúnaðarnefnd athugað nokkuð, og kom það til orða, að slíka tilraun þyrfti að gera og styrkja mann til þess að fara utan og kynna sjer þetta; en þegar nefndin fjekk vitneskju um, að Borgfirðingar hefðu þegar hafist handa, sá hún ekki ástæðu til þess að gera tillögu þar að lútandi. Jeg býst því við, að öll landbúnaðarnefnd verði með þessari till.

Þá vil jeg drepa lítið eitt á einn lið enn. en það er styrkurinn, 400 kr., til síra Björns Jónssonar í Miklabæ. Hann er nú orðinn alblindur, og þó tæplega sextugur maður. Fyrir því varð hann að segja af sjer prestskap í vetur, og verður nú að flytja burt frá staðnum, sem hann hefir dvalið á 20–30 ár. Hann á að vísu nokkur efni, en ef hann ætti langt líf fyrir höndum, þá mundu þau hrökkva skamt til framfærslu þeim hjónum. Hann er sæmdarmaður, sem er góðs maklegur, og áreiðanlega eins maklegur þessa styrks eins og ýmsir þeirra, sem þingið hefir þegar veitt margfalt hærri fjárupphæðir. Annars hefir hv. frsm. (B. J.) mælt svo vel fram með þessum litla styrk, að jeg hygg, að enginn hv. þdm. geti orðið á móti. Jeg vildi aðeins bæta þessu við, til þess að árjetta orð hv. frsm. (B. J.).