30.04.1921
Neðri deild: 59. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1209 í B-deild Alþingistíðinda. (1215)
41. mál, fjárlög 1922
Jón Sigurðsson:
Háttv. frsm. fjvn. (M. P.) óskaði eftir, að jeg gerði nánari grein fyrir brtt. þeirri, sem jeg á á þskj. 426, og skal jeg verða við þeim tilmælum hans.
Þessi brtt. fer fram á 3000 kr. fjárveiting til viðgerðar á vegi frá Hólum í Hjaltadal til Kolkuóss, gegn 2000 kr. tillagi frá hreppnum. Þetta er sýsluvegur, 15 km. á lengd. Það hefir smámsaman verið gert við hann, svo hann á nú að teljast vagnfær. Hann er þó ekki akfærari en svo, að naumast er hægt að fara með meira en 300 til 350 pd. í kerru eftir honum. En það verða menn að viðurkenna, að er aðeins á takmörkunum að teljast akfært.
Vegurinn liggur fyrir austan Hjaltadalsá, og eru það 5 bæir, sem hafa bein not af honum, auk Hólastaðar sjálfs. Bæir hinumegin árinnar hafa að vísu not af honum yfir sumartímann, en haust og vor er áin oft í svo miklum vexti, að þeir eru afskornir afnotum hans.
Þessi vegur er því aðallega fyrir skólann á Hólum og skólabúið. Eins og kunnugt er, er Kolkuós næsta höfn við Hóla, og er þar skipað upp vörum til skólans og búsins. En vegna þess, hve vegurinn er illa akfær, verða flutningar mjög dýrir. Reikningar skólans sýna, að flutningur aðeins á kolum og steinolíu kostar tæpar 2000 kr., auk alls annars, sem stöðugt þarf að flytja. Ef gert er ráð fyrir, að helming þessarar upphæðar, eða 1000 kr., mætti spara, ef vegurinn væri gerður sæmilegur, þá eru það vextir af margfalt hærri Upphæð en jeg hefi árætt að bera hjer fram. Það er því auðsætt, að þetta vegabótarfje ætti að spara stórfje með tímanum.
Þótt rafveitan komist bráðlega á, sem jeg vona, þá er engu að síður stórmikil flutningaþörf; t. d. má benda á, að nú er aðkallandi þörf á miklum húsabótum á Hólum. Sjerstaklega eru fjárhúsin í svo vondu ástandi, að við slíkt er ekki unandi til lengdar fyrir annað eins höfuðból og Hólastaður er, og þar sem á að reka fyrirmyndar búskap.
Ef horfið er að því ráði, sem jeg legg til, að gera við veginn, þá sparast með því allmikið af þeim flutningskostnaði, sem annars mundi leggjast á byggingarefnið, og landssjóður þyrfti að greiða. Jeg vona því, að háttv. þdm. sje það ljóst, að landssjóður er hjer aðallega að vinna fyrir sjálfan sig, og því er ekki óeðlilegt, þótt jeg hafi stigið feti framar um kröfu til fjárframlags úr ríkissjóði en venja er um framlög til sýsluvega.