30.04.1921
Neðri deild: 59. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1218 í B-deild Alþingistíðinda. (1218)

41. mál, fjárlög 1922

Atvinnumálaráðherra (P. J.):

Jeg vil taka undir það, sem háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) sagði um fjárhag landsins, því að við verðum að viðurkenna það, að nú eru hvað alvarlegastir tímar framundan fyrir ríkissjóð, og að menn hafa ekki horft fram á annað eins fyr, og þess vegna er ekki ólíklegt, að grípa þurfi til óvenjulegra meðala eða óyndisúrræða. Þess vegna þótti mjer vænt um, er till. háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) kom fram. Þó get jeg fallist á, að svona heimild þurfi kannske ekki handa stjórninni. Hún geti eða hljóti að undanfella að greiða út fjárhæðir, sem standa í fjárlögunum, af þeirri einföldu ástæðu, að fjeð verður ekki til. Þess vegna hefi jeg litið svo á, að þær fjárlagaupphæðir, sem ekki eru bundnar af öðrum lögum, eða bundnar við stofnanir, sem landssjóður á ekki að sjálfsögðu að standa straum af, beri frekar að skoða sem heimild heldur en skipun. Hitt er annað mál, hvort orða eigi till. eins og hún er nú, að öllu leyti. Þar er tekið svo til orða, að ,,ef fjármálaráðherra telur, að tekjur hrökkvi ekki“. Þetta er dálítið sterklega að orði kveðið; getur jafnvel valdið deilum, hvernig orðið „tekjur“ á að skiljast í þessu sambandi. Það gæti t. d. verið álitamál, ef stjórnin ætti kost á láni til að borga með, hvort hún ætti þá ekki að ganga að því, og telja þá fáanlegt lán með „tekjum“. Það er þó vilji þingsins, sem kemur þarna fram í þessum fjárveitingum, og eftir þeim vilja á stjórnin að fara, eftir því sem hún getur og sjer best fara, án þess þó að tefla ríkinu í voða.

Að öðru leyti er jeg mjög þakklátur hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) fyrir till. hans, og mun greiða henni atkvæði mitt, enda þótt jeg viðurkenni, að jeg hefði heldur kosið hana dálítið öðruvísi orðaða.

Sumir háttv. þdm. hafa vitnað í Magnús Stephensen landshöfðingja sem sjerstakan fjármálamann. Jeg hefi ekki annað en gott eitt að segja um þennan mæta mann, þótt jeg hins vegar geti ekki tekið undir það, að hann væri neinn sjerstakur afburða fjármálamaður. Jeg var nokkur ár samtíða honum á þingi, bæði í landshöfðingjatíð hans og þingmanns. Hann var gætinn í allri meðferð fjármála og þannig skapi farinn, að fara gætilega með fje landsins, en tregur til þess að leggja út í ný fyrirtæki, sem þó voru arðvænleg eða nauðsynleg. Reglulega góðan fjármálamann hugsa jeg mjer þannig, að hann með lægni geti komið miklu í verk, sje duglegur framfaramaður og hygginn í framkvæmdum, en vitanlega fylgir þar með að vera sparnaðarmaður líka á það, sem miður er nauðsynlegt.

Jeg veit ekki, hvort hægt er að segja, að við höfum átt slíkan fjármálamann, einn eða fleiri. En jeg held þó, að frá 1904–14, eða þangað til áhrif stríðsins veltust yfir okkur, að við höfum komið mörgu nytsamlegu fyrirtæki í framkvæmd, og þó fór alt vel um fjármál okkar á þeim árum. Þess vegna hygg jeg, að sá stórhugur, sem þá var kominn inn í menn, hafi valdið því, að menn urðu djarfari en skyldi, þegar truflun komst á fjármálin, og sigldu þess vegna djarfara á meðan á stríðinu stóð og alt fram á síðasta ár.

Það var rjettilega tekið fram hjá. hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.), að úr því ekki hepnaðist að ná sköttum þá eftir gjaldþoli manna, þá sje um seinan að ná til styrjaldargróðans nú, og tekjuvonin því nú langt um minni en búast hefði mátt við, eftir þeim uppgangi, sem var um skeið.

Að svo mæltu vildi jeg hverfa að brtt. þeim, sem fyrir liggja, og fara nokkrum orðum um þær.

Mjer þykir vænt um, að vegurinn frá Hólum í Hjaltadal til Kolkuóss skuli vera tekinn upp. Jeg komst að raun um það í sumar, hve erfitt er fyrir jafnstóra stofnun eins og Hólaskóla og bú hans að geta ekki notað vagna til aðdrátta. Og er slíkt ásigkomulag tilfinnanlegt á meðan öll vinna hesta og manna er í slíku verði og nú hefir verið um hríð og hlýtur að verða framvegis, á meðan ekki er úr bætt, en fjöldi manna saman kominn á þessu heimili, svo t. d. eldiviðarflutningar hljóta að vera sjerstaklega örðugir, með því vegaleysi sem er. Vil jeg því leggja með, að þessi brtt. nái fram að ganga.

Þá er það brtt. samgmn. Það hefir nú gengið svo að undanförnu, að það hefir verið aðeins að nafninu til fjárveiting til strandferða, þ. e. þegar miðað hefir verið við kostnaðinn af „Sterling“, þótt hún hafi hagað sjer svipað í þessu eins og Alþingi að undanförnu og áætlað ófullnægjandi upphæð fyrir Sterling. Jeg ætla ekki að fara að afsaka stjórnina neitt í þessu máli, en hins vegar vil jeg vona, að tekjuhallinn af rekstri Sterlings verði ekki eins mikill og gert er ráð fyrir í till. samgmn., enda nauðsynlegt að koma í veg fyrir það, þó að jafnvel verði að fækka ferðum til þess. En jeg sje ekkert á móti því, þó að till. þessi sje samþ.; hún er þá að minsta kosti til viðvörunar.

Jeg get tekið undir það með háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.), að það má ekki við svo búið standa um þennan mikla kostnað til strandferða í kringum land, eins og nú er búið að hrúga inn í fjáraukalög og fjárlög, að viðbættum tekjuhallanum af Sterling. Að verja meiru fje til strandferða og bátaferða heldur en til vegagerða í landinu, er ekki í rjettu hlutfalli, miðað við það, hvað langir landvegir okkar eru, og mörg hjeruð, sem engin not hafa af þessum sjóferðum.

Við síðari till. samgmn. hefi jeg ekkert að athuga.

Þá kem jeg að brtt. fjárveitinganefnar við 13. gr. Það er um símana. Mjer var það mjög á móti skapi að þurfa að útiloka þessa síma, því að jeg hefi altaf talið þá nauðsynlega, og þótti því leitt að geta ekki tekið þá upp til endurveitingar í fjárlagafrv. stjórnarinnar.

Að vísu býst jeg við, að fje geti vantað til þeirra og fleira, en verði þeir nú teknir upp af nýju, þá standa þeir þó jafnfætis öðrum samskonar fyrirtækjum í fjárlögunum.

Alt þetta verður að sjálfsögðu með því skilyrði, að heimilt verði fyrir stjórnina að fresta þeim framkvæmdum, sem ómögulegt er við að eiga vegna fjárskorts.