03.05.1921
Efri deild: 61. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1297 í B-deild Alþingistíðinda. (1244)
41. mál, fjárlög 1922
Jóhannes Jóhannesson:
Jeg stend upp aðeins til þess að slá því föstu, að nú þegar mál þetta er fyrst tekið á dagskrá í þessari háttv. deild, og það með afbrigðum frá þingsköpum, eru liðnar fullar 11 vikur frá þingsetningu.
Háttv. Nd. hefir því gefið sjálfri sjer góðan tíma til meðferðar fjárlagafrv., en tími sá, sem hún skamtar Ed., er sannarlega naumur, svo framarlega sem þinglausnir eiga ekki að dragast fram úr öllu bófi, og er rjett, að það komi berlega fyrir sjónir almennings, hvor deildin er völd að því, hve lengi þingið á setu.