07.05.1921
Efri deild: 64. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1311 í B-deild Alþingistíðinda. (1254)

41. mál, fjárlög 1922

Karl Einarsson:

Aðeins stutt athugasemd út af 10. og 11. brtt. fjvn.

Jeg verð að segja, að jeg kann illa við að neita um endurveitingu á fje, sem þegar hefir verið veitt í fjárlögum, þegar ekkert hefir upplýst um það, að verkið sje eigi eins nauðsynlegt eins og var, er fjárveitingin var veitt.

Þannig er ástatt um þetta mál, því að það hafa einungis fjárhagslegar ástæður valdið því, að símar þessir hafa ekki verið lagðir. En það væri öðru máli að gegna, að setja þá athugasemd, að stjórnin mætti fresta lagningu þessara síma, ef fjárhagsörðugleikar verða miklir. Jeg myndi flytja brtt. í þessa átt, ef nefndin óskaði, og till. verða feldar með þessum fyrirvara. Jeg verð að líta svo á, að þær fjárhæðir, sem veittar hafa verið í fjárlögum til einhvers ákveðins verks, eigi að koma í næstu fjárlögum, svo framarlega sem ekki hefir verið horfið frá verkinu. Jeg tel því, að það sje eins og bindandi loforð fyrir þingið, þegar það er búið að samþykkja einhverja fjárhæð, og hún hefir eigi verið notuð, að láta hana sitja fyrir öðrum næst.