07.05.1921
Efri deild: 64. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1313 í B-deild Alþingistíðinda. (1256)
41. mál, fjárlög 1922
Frsm. fjvn. (Sigurður Hjörleifsson Kvaran):
Það er sýnilega ekki mikið um þetta að segja af hálfu mín sem frsm.
Hæstv. forsætisráðherra (J. M.) mintist á Reykholtsbæ. Það er nú ekki stórmál, hvort veittar verða 2500 kr. eða 5000 kr. Og hvor upphæðin, sem veitt verður, þá fer hún til hinnar væntanlegu bæjarbyggingar.
Um námsstyrk stúdenta erlendis er nokkuð meiri vandi, en nefndinni fanst nú rjett að binda hann við 4 fyrstu árin, en ef meira þyrfti, yrði þá að koma því fyrir á einhvern annan hátt.
Heimild til að leggja á skólagjald við Mentaskólann gæti komið til mála, þar sem skólagjöld eru við Kvennaskólann, en við hinar stofnanirnar virðist ekki ástæða til þess.
Þá held jeg, að ekki sje fleiru að svara nema mótmælunum um símana. Þetta eru 145,000 kr., sem þar er um að ræða, og eru einu upphæðirnar í frv., sem hægt er að benda á að mætti spara. Háttv. deild ræður nú auðvitað. hvort hún tekur tækifærið til þess að spara þetta, Við höfum nú heyrt ræðu háttv. frsm. fjhn. (S. E.) um ástandið, og bendir hún í sparnaðaráttina. Þess er og vert að geta, að hvorki liggja fyrir tillögur landssímastjóra nje landsstjórnar um byggingu þessara síma á þessu ári, og virðist mjer það talsvert styrkja mál nefndarinnar. En annars er aðalatriðið, hvort við höfum fje til þessa, því að vitanlega er bygging þessara lína æskileg eins og margra fleiri. Viðvíkjandi því, að þetta sje endurveiting, þá er því til að svara, að þær eru nú orðnar margar fjárveitingarnar, sem ekki hafa orðið notaðar, og þó ekki fengist endurveittar. Sumar þeirra hafa staðið ónotaðar í mörg ár. Jeg man ekki betur en að samþykt hafi verið fjárveiting til brúar á Eyjafjarðará fyrir mörgum árum, og Eyjafjarðará er óbrúuð enn. Sama er að segja um vitana á Austurlandi og margt fleira. Þetta er því ekki ástæða til þess, að heimta þetta nú inn í fjárlögin.