07.05.1921
Efri deild: 64. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1335 í B-deild Alþingistíðinda. (1270)

41. mál, fjárlög 1922

Karl Einarsson:

Háttv. frsm. (S. H. K.) hefir tekið það óstint upp fyrir mjer, að jeg las hjer upp skeyti frá bæjarstjórn Vestmannaeyja. Jeg gerði það aðeins til þess að upplýsa háttv. deild um það, hversu nauðsynlegt bæjarstjórnin áliti að halda skipinu úti yfir þennan tíma. Og jeg held, að eigi sje ástæða til þess að taka það illa upp. Jeg vona og treysti því, að háttv. deild lofi styrkveitingu þeirri, er hv. Nd. samþykti, að standa, og skal jeg eigi fara fleiri orðum um þetta mál.