11.05.1921
Efri deild: 67. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1338 í B-deild Alþingistíðinda. (1275)

41. mál, fjárlög 1922

Fjármálaráðherra (M. G.):

Mjer kemur það undarlega fyrir, að sjá fjhn. húa til áætlun yfir tekjuhlið fjárlaganna, áður en sjeð er um forlög margra tekjufrv. stjórnarinnar og hvernig gjaldahlið fjárlaganna reiðir af. Jeg tel, að þetta mætti bíða einnar umr. fjárlaganna í Nd. Mjer finst það enn fremur einkennilegt, að nefndin skyldi breyta fjárhagsáætluninni, án þess að bera sig saman við mig um neitt. En áður en jeg fer út í að athuga einstaka tekjuliði, vil jeg einungis geta þess, að þegar frv. var samið, var reynt að horfast beint í augu við dýrtíðina. Af þessu leiðir, að það verður að áætla tekjuhliðina sem næst því, sem hún muni verða, því að þannig er gjaldahliðin áætluð. Þetta er að vissu leyti stefnubreyting, sem fram er komin vegna aðgerða þessarar háttv. deildar 1919, því að þá hækkaði hún tekjuhliðina mikið.

Vil jeg svo benda á áætlun, sem jeg gerði í þingbyrjun, og bera saman við áætlun nefndarinnar. Um fasteignaskattinn er það að segja, að nefndin hefir áætlað hann of háan, ef hann verður eins og hv. Nd. ætlast til.

Tekjuskatturinn er aftur á móti of lágt áætlaður hjá nefndinni, því að ef tekjuskattsfrv. stjórnarinnar nær fram að ganga, þá verður betur talið fram til skattsins en gert hefir verið áður, og einnig fleira skattlagt. Árið 1920 nam þessi skattur yfir 800 þúsund kr., en nú áætlar nefndin hann 650 þús. kr. Jeg veit það vel, að nú er miklu verra árferði en var undanfarin ár, en jeg held, að það vegi upp á móti, sem skatturinn hefir verið hækkaður og betur verður talið fram til hans en áður, því að það hefir sýnt sig annarsstaðar, að þegar skattgreiðendur voru neyddir til að telja fram tekjur sínar sjálfir, þá hefir skatturinn hækkað um 40–50% frá því, sem áður var. Mætti því óhætt áætla skatt þennan 1 miljón króna.

Um aukatekjurnar er ekkert að segja, því að þær áætlar nefndin eins og jeg hefi gert.

Erfðafjárskatturinn er áætlaður hjá nefndinni 20 þús. kr., en hann var 1920 45 þús. kr., en á þessu þingi hefir verið hækkað gjaldið á þeim liðum, sem gefur mestar tekjur, og það er arfur til niðja. Það nær því engri átt að áætla skatt þennan svona lágan.

Vitagjaldið áætlar nefndin 100 þúsund kr., eins og það var áætlað 1919. Árið 1920 var þessi skattur 160 þús. kr. Er hann því varlega áætlaður eins og jeg gerði, 150 þús. kr., með tilliti til hækkunar, sem kom í framkvæmd 1920.

Leyfisbrjefagjaldið áætlar nefndin eins og jeg, 10 þús. kr.

Útflutningsgjaldið áætlar nefndin sömuleiðis of lágt. Jeg hefi gert áætlun um 300 þús. kr. útflutningsgjald af síld, og 300 þús. kr. af öðrum útfluttum vörum. Og það fer illa, ef útfluttar vörur verða ekki fyrir 40 milj. kr., þar sem togaraútvegur eykst svo mjög, og ætti því gjald þetta alls ekki að lækka.

Þá er tóbakstollurinn áætlaður hjá nefndinni 500 þús. kr., en varð 1920 yfir 700 þúsund kr. Hjer virðist nefndin því áætla of lágt.

Kaffi- og sykurtollurinn er fullhátt áætlaður hjá nefndinni.

Þá er vörutollurinn of lágt áætlaður, þegar tekið er tillit til þess, að 1920 var hann 1320 þús. kr., þrátt fyrir innflutningshöftin. Nú er tollur þessi hækkaður dálítið, svo að eigi virðist fjarri sanni að áætla þennan skatt nú 1500 þús. kr., ef búast má við venjulegum innflutningi 1922, sem við vonum.

Þá er annað aðflutningsgjald áætlað hjá nefndinni 60 þús. kr. Þetta nær engri átt, því að á þeim vörum er nú hækkað innflutningsgjald til muna. (B. K.: Það er bannaður innflutningur á átsúkkulaði o. fl. þess konar vörum, sem heyra undir þetta). Já, í ár, en vonandi ekki 1922. En ef bannið á að haldast, því þá ekki alveg að strika liðinn út.

Gjald af konfekt og brjóstsykri áætlar nefndin fremur lágt, 10 þús. kr. Þetta gjald var 1920 um 30 þús. kr.

Þá hefir nefndin áætlað símatekjurnar nokkuð lágar, aðeins 800 þús. kr., en þær voru síðastliðið ár 1100 þús. kr. Jeg veit eigi, á hverju þessi áætlun byggist.

Jeg sje hvergi tilfærðan ágóða af einkasölu á tóbaki, nje bifreiðaskattinn. Jeg veit ekki, hvort það er af því, að nefndin vill það dauðadæmt, en jeg spái, að bæði þessi frv. gangi í gegn.

Skal jeg svo eigi fara frekar út í þetta mál nú, en mun koma með til þeirrar einu umr., sem eftir er í Nd., þær brtt., sem mjer þykir þurfa, enda er það of snemt nú.