11.05.1921
Efri deild: 67. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1346 í B-deild Alþingistíðinda. (1279)
41. mál, fjárlög 1922
Frsm. fjvn. (Sigurður Hjörleifsson Kvaran):
Jeg býst við, að starf mitt sem frsm. verði ljett í þetta sinn, því að brtt. eru fáar. En áður en jeg vík að einstökum brtt. vil jeg leggja áherslu á það, að þar sem tekjuhallinn er nú talinn í frv. 2,586,328,37 kr., þá er ekki sýnilegt annað en um mjög verulegan tekjuhalla verði að ræða, enda þótt líkindi sjeu til, að hækka megi tekjuhliðina nokkuð, jafnvel um 11/2 miljón, að dómi hæstv. fjrh. (M. G.), jafnvel þótt útgjöldin sjeu ríflega áætluð. Jeg bendi á þetta til athugunar gagnvart brtt. þeim, sem fram eru komnar og nálega allar miða í þá átt að hækka tekjuhallann.
Flestar brtt., bæði nefndarinnar og einstakra þingmanna, eru á þskj. 562. Jeg mun nú þræða það skjal, því að brtt. nefndarinnar eru svo fáar, að mjer þykir ekki taka því að gera þær að umtalsefni sjerstaklega, heldur tek jeg þær eftir því, sem röðin kemur að þeim.
Fyrst er þá brtt. II. frá háttv. 2. þm. G.-K. (B. K.), um að Kjósarbúar fái hærri styrk til að vitja læknis en áður. Voru það áður 200 kr., en hjer er farið fram á 400 kr., og til vara 300 kr. Um þetta er það að segja, að nefndin taldi rjett að fara varlega í allar slíkar hækkanir, því að fleiri samskonar kröfur mundu koma á eftir, sem eins mikil sanngirni væri í, og þá er komið út á hálan ís. Þess vegna leggur nefndin á móti aðaltill., en varatill. lætur hún afskiftalausa.
Þá er III. töluliður á þskj. 562. Hann hljóðar um dýrtíðaruppbót yfirsetukvenna, og er frú háttv. 1. landsk. þm. (S. F.) og háttv. 2. þm. Rang. (G. Guðf.). Því verður nú vitanlega ekki neitað, að laun yfirsetukvenna sjeu lág enn, þótt þau væru bætt nokkuð nýlega.
Þessar 20 þús. kr., sem hjer er farið fram á að verði veittar yfirsetukonum að auki, eru dýrtíðaruppbót, sem nemur 2/3 af laununum, og er það meiningin, að þar sje farið eftir sömu reglu og um laun presta. Nefndin hefir ekki getað fallist á aðaltill., en ætlar að ganga inn á varatill.
Næst kemur brtt. frá fjvn. um dyravörð Mentaskólans. Hæstv. fjrh. (M. G.) hafði bent á, að ekki væri þörf á þessari fjárveitingu, af því að fjárhæðin væri tekin með í launum við mentaskólann, og fjárveitingin því óþörf. Í sambandi við það skal jeg geta þess, að jeg hefi umboð frá nefndinni til að lýsa yfir því, að hún telur rjett, að rektor skólans sje greitt hæfilegt gjald fyrir starf sitt sem reikningshaldari og eftirlitsmaður skólans. Annars þótti nefndinni ekki ástæða til að koma fram með brtt. þessu viðvíkjandi, en væntir þess, að þetta fái framgang samt.
Þá kemur næst brtt. frá 3 þingmönnum um gagnfræðaskólann á Akureyri. Nefndin hefir enn ekki tekið afstöðu til þessarar till. og þykir rjettara að láta óúttalað um það af sinni hálfu, þar til háttv. flutningsmenn brtt. hafa látið í ljós það, sem þeir hafa fram að færa um málið.
Þá er næst till. háttv. 2. þm. Rang. (G. Guðf.) um barnaskólana. Hún er sú, að fyrir „alt að þriðjungi kostnaðar“ komi „alt að helmingi kostnaðar“, og svo annað, að fyrir 20,000 kr. komi 25,000 kr. Nefndin hefir ekki getað aðhylst þessa till. Það hefir tíðkast um langan tíma, að ekki sje greiddur nema 1/3 kostnaðar, og telur nefndin varhugavert að gera á þá breytingu, enda gæti það haft ófyrirsjáanleg útgjöld í för með sjer.
Næst kemur aðeins orðabreyting sú, að í stað „Skutilsfjarðareyri“ komi „Ísafjarðarkaupstað“. Nefndinni þótti engin ástæða til að vera að flagga hjer með Skutilsfjarðareyri, og rjettara að orða það svo, sem nú er.
Jeg man svo ekki eftir, að jeg þurfi að taka fleira fram viðvíkjandi þessum fyrstu 14 liðum.