11.05.1921
Efri deild: 67. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1358 í B-deild Alþingistíðinda. (1289)
41. mál, fjárlög 1922
Sigurður Eggerz:
Jeg á hjer eina brtt. með háttv. 2. þm. G.-K. (B. K.), sem fer í þá átt að hækka styrkinn til Gísla Guðmundssonar upp í 5000 kr. Hefir hann undanfarið verið að rannsaka orsakirnar til skemdanna á saltkjöti. Hann er nú kominn að þeirri niðurstöðu, að súr í saltkjöti stafi af þreytu á skepnunum áður en þeim er slátrað. En til að fullkomna þessar rannsóknir sínar þarf hann að sigla. Hefir hann beðið þingið um styrk til þess. Kostnaður við þetta alt mun nema um 11.000 kr. Auk þessa mun hann hafa eytt allmiklu fje í að kaupa kjöt til að rannsaka. (S. H. K.: Það er talið með í þessum 11 þús. kr.). Vafalaust ætti þessi rannsókn að geta orðið mjög gagnleg og hjálpa til þess, að hægt verði að bæta verkunina á saltkjötinu. Auk þessarar rannsóknar hefir Gísli í hyggju að athuga í utanför sinni, hvernig hentast muni að fara með íslenska kjötið. Um sumar fjárveitingar má sjálfsagt segja, að þær sjeu ekki bráðnauðsynlegar, en þessi fjárveiting er áreiðanlega mjög nauðsynleg.
Hún fer beint í þá átt að reyna að bæta kjötmarkaðinn. Þeir, sem þekkja Gísla Guðmundsson gerlafræðing, vita, að hann er enginn yfirltismaður og gerir ekki meira úr þessu en ástæða er til. Jeg veit, að hann getur fengið vottorð um áhuga sinn á þessu máli, og er mjer mikil ánægja að mæla með þessari fjárveitingu, og jeg vænti þess, að háttv. deild sýni fullan skilning á máli þessu, og það því fremur sem viðkomandi verður sjálfur að leggja mikið í kostnað, til þess að koma máli þessu í gott horf, í raun og veru ætti landið að sjá sóma sinn í að kosta för hans að fullu, þar sem þetta er þektur maður og gerir þetta í landsins þarfir. Jeg vona, að deildin viðurkenni, að þetta eru ekki staðlausu stafir, sem jeg hefi farið með hjer, og veiti honum þessa fjárveitingu.