11.05.1921
Efri deild: 67. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1362 í B-deild Alþingistíðinda. (1293)

41. mál, fjárlög 1922

Halldór Steinsson:

Jeg á hjer eina brtt. með háttv. 2. þm. Eyf. (E. Á.), en jeg þarf lítið um hana að segja, því að hún skýrir sig sjálf. Jeg skal taka það fram, að það er ekki af neinni óvild gegn ullariðnaði, að við gerum það að till. okkar, að ábyrgðin á láninu verði lækkuð úr 500 þús. kr. niður í 200 þús. kr. Þvert á móti, við viljum gjarnan, að menn þurfi ekki að klæðast í útlendan ullarklæðnað. En hjer er margt að athuga og maður verður að líta á það, að nú á að skilja við fjárlögin með halla, sem nemur miljónum, og svo þar að auki að veita ábyrgð á stórfje.

Þess vegna sjáum við okkur ekki fært að veita þessa ábyrgð, sem hjer er farið fram á, ekki síst þareð nýlega var veitt 100 þús. kr. lán úr ríkissjóði til þessa sama fyrirtækis. En eins og jeg sagði áðan, þá er þetta alls ekki af neinni mótspyrnu gegn fyrirtækinu, heldur einungis af umhyggju fyrir hag ríkisins.