14.05.1921
Neðri deild: 70. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1394 í B-deild Alþingistíðinda. (1310)

41. mál, fjárlög 1922

Sveinn Ólafsson:

Jeg mun eigi verða langorður og ætla mjer eigi í neitt reiptog við fjvn. út af fjárveitingatill. hennar, og það því síður, sem háttv. frsm. fyrri hlutans (M. P.) hafði þann gleðiboðskap að færa, að nefndin hefði fært niður útgjöldin um 100,000 kr. Raunar er nú þessi niðurfærsla á kostnaðinum við strandferðirnar, áætlunarupphæðin til Sterlingsferða, færð úr 300 í 200 þúsund kr. aðeins til málamynda, og mun reynast ljett í vasanum, en tilraun er þó gerð til sparnaðar.

En hjer er annað í efni, sem mig hneykslar.

Háttv. fjvn. vill binda byggingastyrk til barnaskóla í sveitum því skilyrði, að það sjeu heimavistarskólar. Háttv. frsm. (B. J.) segir, að ekki eigi að byggja aðra skóla en heimavistarskóla í sveitum. Jeg játa það, að sumstaðar er svo ástatt, að hentugast er að hafa heimavistarskóla. En á ýmsum stöðum eru heimangönguskólar hentugri, og auðvitað eru þeir hagfeldari og ódýrari, þar sem staðhættir leyfa að nota þá. Jeg álít best, að hjeraðsstjórnir eigi að ráða þessu. Jeg skil ekki tilganginn með því, að svifta þá ákvörðunarrjettinum, sem styrksins eiga að njóta, og neyða þá til að byggja heimavistarskóla, sem eigi hafa þess þörf, eða vera án styrksins.

Við búnaðarfjelögin vill háttv. fjvn. hafa sömu aðferð. Styrkurinn á að vera bundinn því skilyrði, að honum sje varið til verkfærakaupa og styrktar sameiginlegri starfsemi innan fjelaganna. Hjer er ekkert tillit tekið til þess, sem fjelögin sjálf álíta, að bestan árangur gefi. ( ólesanlegt letur).. finst óþarfi að taka svona sjálfsákvörðunarrjettinn af þeim, sem styrksins eiga að njóta, og sem í þessu efni eru sjálfsagt miklu dómhæfari en háttv. fjvn. um meðferð styrksins. Jeg sje enga ástæðu til að leyfa búnaðarfjelögunum ekki að ráða yfir styrknum og nota hann eins og þeim þykir rjettast. Jeg býst við, að jeg standi ekki einn uppi með þessa skoðun, að þau eigi þar öllu að ráða og að nefnt skilyrði nefndarinnar sje óeðlilegt.