19.05.1921
Efri deild: 73. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1413 í B-deild Alþingistíðinda. (1328)

41. mál, fjárlög 1922

Frsm. fjvn. (Sigurður Hjörleifsson Kvaran):

Jeg verð að segja það, að mjer kom það undarlega fyrir, að umboðsmaður enska bankans teldi það litla hjálp til að greiða fram úr togaraörðugleikunum, að ábyrgð sú sje veitt, sem hjer ræðir um. En jeg get ekki betur sjeð en bankann ætti að muna jafnvel um minna en 200 þús. kr. ábyrgð ríkissjóðs fyrir hverju skipanna. Er það þá svo, að þá er komið niður að þessum 7000 pundum, sem um hefir verið talað, eða nær því, um mörg skipanna. Hitt veit jeg, að sumum fjelögunum verður líklega fullörðugt að veita þær tryggingar, sem með þarf, til þess að stjórnin sjái sjer fært að ganga í ábyrgðina. En til þess verður að ætlast, að fjelagsmenn í þessum fjelögum leggi nokkuð á sig sjálfir, og sá, sem ekki vill hjálpa sjer sjálfur, á heldur ekki skilið að fá hjálp ríkissjóðs.